Fótbolti

KR mætir FH í undanúrslitum

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Áhorfendur létu kuldan ekki stöðva sig
Áhorfendur létu kuldan ekki stöðva sig vísir/pjetur
KR lagði Fylki 3-1 á gervigrasi KR í átta liða úrslitum Lengjubikars karla í fótbolta. Þar með að ljóst að KR mætir FH í undanúrslitum en í hinni viðuregninni eigast við Breiðablik og Þór.

Atli Sigurjónsson kom KR yfir á 34. mínútu og Gary Martin jók muninn fimm mínútum síðar. Staðan í hálfleik 2-0 KR í vil.

Gunnar Örn Jónsson minnkaði muninn á elleftu mínútu seinni hálfleiks en Kjartan Henry Finnbogason gerði út um leikinn rúmum stundarfjórðungi fyrir leikslok.

Undanúrslitin verða leikin á mánudaginn, annan í páskum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×