Íslenski boltinn

Dúkur yfir Dalnum | Áfram reynt að endurlífga völlinn

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Dúkurinn hjálpar fræjunum að spíra.
Dúkurinn hjálpar fræjunum að spíra. Vísir/Pjetur
Eins og sjá má á myndinni sem Pjetur Sigurðsson, ljósmyndari Fréttablaðsins og Vísis, tók af Laugardalsvelli í dag þá liggur hvítur dúkur yfir vellinum.

Vallarstarfsmenn á Laugardalsvelli vinna nú hörðum höndum að því að endurlífga hann en grasið á þjóðarleikvanginum drapst í vetur og er ástandið ekki gott.

Kristinn Jóhannsson, vallarstjóri Laugardalsvallar, sagði við Vísi fyrir helgi að fræ sem sá átti á völlinn kæmu s.l. föstudag og er dúkurinn síðan notaður til að hjálpa fræjunum að spíra.

Þetta er þó ekki jafnmyndarlegur dúkur og sá sem var yfir vellinum í aðdraganda stórleiksins gegn Króatíu í nóvember. Þessi er mun einfaldari og algengari en hjálpar þó til við að koma vellinum í stand.

Laugardalsvöllur verður ekki klár í fyrstu umferð þegar Fram mætir ÍBV og hefur leikurinn verið færður á gervigrasvöllinn í Laugardalnum en þar mætti Fram Íslandsmeisturum KR í Meistarakeppni KSÍ í gær.

Fram á þrjá heimaleiki í maí og er alls óvíst hvort liðið geti leikið nokkurn þeirra á Laugardalsvellinum. Allt starf þar miðast við að hafa leikinn klárann fyrir vináttulandsleikinn gegn Eistlandi 4. júní.

„Framarar eiga að spila þrjá leiki í maí en þeir munu ekki spila fyrsta leikinn, það er alveg ljóst. Við tökum þetta svo fyrir bara vikulega og metum ástandið. Ég myndi segja að fyrsti leikurinn verði ekki fyrr en í júní en auðvitað vonum við að Framarar fái að spila í maí. Útlitið er ekki gott en það kemur í ljós,“ sagði Kristinn Jóhannsson við Vísi í síðustu viku.


Tengdar fréttir

Ágúst og Kristinn bestu vallarstjórarnir

Gras er ekki bara gras og það vita íslenskir vallarstjórar best. Samtök Íþrótta- og Golfvallastarfsmanna hafa nú annað árið í röð veitt verðlaun til vallarstjóra.

Laugardalsvöllur nánast ónýtur

Nú þykir ólíklegt, og nánast vonlaust, að Fram leiki heimaleiki sína í Pepsí–deildinni á Laugardalsvelli í maí. Fari svo þurfa knattspyrnumenn í Fram að leita annnað.

Laugardalsvöllur lítur illa út

Ólíkegt er að Fram spili á Laugardalsvelli í fyrstu umferð Pepsi-deildarinnar þann 4. maí næstkomandi.

Vellirnir að koma misvel undan vetri

Vallarstjórar liða í Pepsi-deild karla biðja nú til veðurguðsins að hann gefi góðan apríl. Ef tíðin lagast ekki á næstu vikum er ljóst að ástanda margra valla í deildinni verður slæmt þegar flautað verður til leiks í byrjun maí. Menn eru misbjartsýnir á f

Þarf að lífga grasið í Laugardalnum við

Þjóðarleikvangurinn mjög illa farinn eftir erfiðan vetur en unnið er í honum.Óvíst hvort Framarar fái að spila heimaleik á Laugardalsvelli í maímánuði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×