Íslenski boltinn

Sjáðu mörkin sem KR skoraði á móti Fram | Myndband

Tómas Þór Þórðarson skrifar
KR vann Fram, 2-0, í Meistarakeppni KSÍ í dag, árlegum leik Íslandsmeistaranna gegn bikarmeisturunum. Sömu lið mættust í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins fyrr á árinu en þar hafði Fram sigur.

Kjartan Henry Finnbogason skoraði fyrra mark KR úr vítaspyrnu sem dæmd var á ViktorBjarka Arnarsson, fyrrverandi leikmann KR, og Emil Atlason skoraði það síðara eftir langa spyrnu markvarðarins Stefáns Loga Magnússonar fram völlinn.

Bæði mörkin má sjá í spilaranum hér að ofan.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×