Íslenski boltinn

Heimir með sex titla í þremur störfum á 14 árum hjá FH | Myndband

Heimir Guðjónsson hefur verið hjá FH í fjórtán ár; sem leikmaður aðstoðarþjálfari og nú síðast þjálfari. Hann hefur notið hverrar mínútu.

Á þeim tíma sem Heimir hefur starfað í Hafnarfirði hafa FH-ingar unnið Íslandsmeistaratitilinn sex sinnum og bikarinn tvisvar sinnum.

Þá hefur liðið ekki endað neðar en í öðru sæti á Íslandsmótinu síðan 2003 en sjálfur hefur Heimir unnið þrjá Íslandsmeistaratitla sem þjálfari og einn bikarmeistaratitil.

FH er líklegt til afreka í sumar enn eitt árið en Pepsi-deildin í fótbolta hefst eftir slétta í viku. FH-ingar byrja reyndar á mánudaginn eftir viku þegar þeir mæta Breiðabliki á útivelli.

Guðjón Guðmundsson hitti Heimi Guðjónsson í vikunni en innslagið má sjá í spilaranum hér að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×