Íslenski boltinn

Veislan í Dalnum í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Ásgeir Marteinsson og félagar í Fram halda áfram að spila í Dalnum.
Ásgeir Marteinsson og félagar í Fram halda áfram að spila í Dalnum. Vísir/Vilhelm
Stöð 2 Sport sýnir báða leikina sem fram fara á gervigrasinu í Laugardal á fimmtudaginn í Pepsi-deild karla í knattspyrnu í beinni útsendingu. Pepsi-mörkin fylgja svo í kjölfarið.

Heimaleikir Vals og Víkings voru færðir fyrr í dag og mæta Víkingar liði Fram í Dalnum klukkan 18.00 og klukkan 20.30 hefst leikur Vals og Keflavíkur.

Útsendingin fyrir leik Víkings og Fram hefst klukkan 17.45 og útsendingin fyrir leik Vals og Keflavíkur klukkan 20.00. Pepsi-mörkin hefjast svo klukkan 22.30 en þau eru nú í læstri dagskrá.

Leikur Breiðabliks og KR, sem upphaflega átti að vera í beinni útsendingu, verður því ekki sýndur beint en í staðinn verður boðið upp á veisluna í Dalnum.

Dagskráin á fimmtudaginn á Stöð 2 Sport:

17.45 Víkingur - Fram

20.00 Valur - Keflavík

22.30 Pepsimörkin




Fleiri fréttir

Sjá meira


×