Íslenski boltinn

Arnþór: Átti að skora fleiri mörk

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Vísir/Vilhelm
Arnþór Ari Atlason er einn af hinum nýju ungu leikmönnum Fram og átti flottan leik í dag.

Hann skoraði eina mark liðsins í 1-1 jafntefli gegn ÍBV en fyrsta umferð Pepsi-deildar karla hófst í dag.

"Ég var auðvitað ánægður með að skora í dag en mörkin áttu að vera fleiri. Ég get alveg viðurkennt það," sagði Arnþór Ari en viðtalið má lesa í heild sinni hér fyrir neðan, sem og frekari umfjöllun um leikinn.

"Það var enginn skrekkur í okkur fyrir leik. Meiri spenna enda búnir að bíða eftir þessu í allan vetur. Mér fannst allir standa sig vel í dag. Ég er stoltur af strákunum."


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×