Innlent

Ísland í dag: „Við gerum allt til að hjálpa henni“

Þegar Hermann Helenuson skráði sig til leiks í Ísland got Talent á síðasta ári var ástæðan ekki sú að hann vildi slá í gegn og öðlast frægð. Hans æðsta ósk var að sigra og fá milljónirnar tíu til að geta hjálpað Karen stóru systur sinni sem greindist fyrir fjórum árum með alvarlega hryggskekkju.

Í fyrstu var reynt að laga skekkjuna með því að láta Karen, sem er sextán ára, ganga í spelku í rúmt ár en hún er þriðji Íslendingurinn sem lýkur svo erfiðri spelkumeðferð. Þegar meðferðinni lauk kom í ljós að skekkjan hafði aukist úr 41 gráðu í 52 og verkir orðnir daglegt brauð. Stúlkan ótrúlega dreymir um að fara í aðgerð til að laga skekkjuna.

„Ég vona að verkirnir minnki. Það er aðalatriðið,“ segir Karen.

Fjölskyldan hefur þó ekki fundið lækni á Íslandi sem treystir sér til að gera aðgerðina. Þá var bara eitt í stöðunni - að fara til útlanda í aðgerð sem kostar 7 milljónir. Þau leituðu til sjúkratrygginga en fengu því miður neitun.

„Það kom kona til mín á kassa í Bónus um daginn, ég er vinna þar. Hún sagði mér að systir sín væri með eins skekkju og ég. Systir hennar er í dag að nálgast fertugt og gengur með göngugrind því hún fékk ekki að fara í þessa aðgerð,“ segir Karen.

Systkini Karenar þau Hermann og Lovísa berjast með – þrátt fyrir ungan aldur - vinna þau hörðum höndum við að sýna töfrabrögð víða um land. Og systkinin hafa nú skipulagt styrktarsýningu í Salnum í Kópavogi sem verður nú í kvöld klukkan hálf átta.

„Við gerum allt til að hjálpa henni,“ segir Hermann.

Nánari upplýsingar um sýninguna í kvöld og söfnunina má finna á Fésbókarsíðu Hermanns.

Nánar verður fjallað um sögu Karenar og spjallað við systkini hennar í Íslandi í dag í kvöld klukkan 18.55, strax að loknum kvöldfréttum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×