Sport

Renan Barao | 33 bardagar í röð án ósigurs

Pétur Marinó Jónsson skrifar
Renan Barao rotar Eddie Wineland með snúandi hliðarsparki.
Renan Barao rotar Eddie Wineland með snúandi hliðarsparki. Vísir/Getty
Næstkomandi laugardagskvöld berst Renan Barao (32-1(1)) við TJ Dillashaw (9-2) um bantamvigtartitil UFC. Bardaginn er aðalbardaginn á UFC 173 og hefst útsendingin klukkan 2 á Stöð 2 Sport.

7-0 í UFC, taplaus í 33 bardögum í röð og tapaði síðast árið 2005. Þrátt fyrir þessar tölur virðist Renan Barao vera stórlega vanmetinn. Þessi 27 ára Brasilíumaður mun verja UFC belti sitt í fjórða sinn á laugardaginn og virðist verða betri með hverri titilvörninni.

Eftir að hafa byrjað sem glímumaður að upplagi hefur Barao tekið stórtækum framförum á öllum sviðum bardagans. Frá því hann tók sinn fyrsta MMA bardaga 18 ára að aldri hefur boxið hans, og síðar sparkboxið hans, farið frá því að vera undir meðallagi í að verða stórgott. Hann er einn af örfáum bardagamönnum í heiminum í dag sem er frábær á öllum vígstöðum bardagans.

Hann er baneitraður í gólfinu og hefur sigrað 14 bardaga eftir uppgjafartök. Oft er hann að klára bardagana í gólfinu eftir að hafa kýlt andstæðing sinn niður. Andstæðingum hans hefur gengið illa að koma honum á bakið þar sem hann hefur varist 19 af 20 fellutilraunum andstæðinga sinna í UFC!

Þrátt fyrir að vera frábær í gólfinu og í standandi viðureign er sennilega stærsti styrkleiki hans drápseðlið. Þetta kom bersýnilega í ljós í hans fyrstu bardögum og er drápseðlið enn sterkt í honum. Þegar hann sér að andstæðingurinn er meiddur veður hann í þá og reynir eftir fremsta megni að klára þá líkt og hungraður hákarl sem finnur lykt af blóði.

Barao æfir hjá einu besta MMA liði veraldar, Nova União í Brasilíu. Þar æfir hann ásamt mönnum eins og Jose Aldo, Jussier Formiga, Thales Leites, Johny Eduardo og fleirum.

Laugardagskvöld mætir hann TJ Dillashaw sem æfir með Team Alpha Male. Þetta verður í fimmta sinn sem Nova União og Team Alpha Male keppendur mætast í titilbardaga í UFC og alltaf hefur Nova União haft betur. Hvað gerist á laugardagskvöldið skal ósagt látið en bardaginn er aðalbardaginn á UFC 173 bardagakvöldinu sem fram fer á laugardagskvöldið.

Vísir og MMA Fréttirstarfa saman í umfjöllun um MMA. Ekki gleyma að setja "like" við Facebook síðu þeirra hér. 

MMA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×