Lífið

Barnastjarna leikur þybbinn nasista

Haley Joel Osment
Haley Joel Osment Vísir/Getty
Fyrrum barnastjarnan  Haley Joel Osment var nánast óþekkjanlegur, er sást til hans við tökur á nýjustu mynd sinni í Los Angeles á þriðjudag.

Flestir muna eftir leikaranum sem krúttlega drengnum sem trúði Bruce Willis fyrir því að hann sæi dáið fólk í myndinni Sixth Sence, en hann sýndi svo sannarlega á sér nýja hlið þar sem hann fer með hlutverk þybbins nasista með fitugt hár í nýjustu mynd Kevin Smith, Yoga Hosers.

Aðalhlutverkið í myndinni er í höndum Johnny Depp og eru aðrir leikarar meðal annars Orange is the New Black stjarnan Natasha Lyonne og Adam Brody. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×