Bíó og sjónvarp

Frábær stökkpallur fyrir íslenskar myndir

Kristjana Arnarsdóttir skrifar
Hátíðin festir sig í sessi Leikstjórinn Hafsteinn Gunnar Sigurðsson er einn þeirra sem standa að Skjaldborgarhátíðinni á Patreksfirði.
Hátíðin festir sig í sessi Leikstjórinn Hafsteinn Gunnar Sigurðsson er einn þeirra sem standa að Skjaldborgarhátíðinni á Patreksfirði. fréttablaðið/Stefán
„Það eru þegar komnir mjög margir spennandi titlar inn í prógrammið og er dagskráin til marks um þá grósku sem er í gangi í íslenskri heimildarmyndagerð,“ segir leikstjórinn Hafsteinn Gunnar Sigurðsson um Skjaldborgarhátíðina, sem fer fram á Patreksfirði helgina 6.-9. júní.

Hátíðin hefur fest sig í sessi sem helsti vettvangur fyrir frumsýningar á íslenskum heimildarmyndum.

„Skjaldborg er góður stökkpallur fyrir íslenskar myndir. Margar þeirra hafa í gegnum tíðina náð í almenna dreifingu og jafnvel verið sýndar erlendis,“ segir Hafsteinn.

Hann bætir við að lokað verði fyrir umsóknir í næstu viku og því sé enn möguleiki fyrir íslenska leikstjóra að koma myndum sínum að á hátíðinni.

Heiðursgestur Skjaldborgarhátíðarinnar í ár er rússneski heimildarmyndagerðarmaðurinn Victor Kossakovsky en hann hefur á undanförnum árum skapað sér stórt nafn í alþjólegri heimildarmyndagerð.

Nokkrar myndir Kossakovsky verðar sýndar á hátíðinni, þar á meðal verðlaunamyndin Vivan Las Antipodas! en myndin hlaut Umhverfisverðlaun RIFF árið 2012 og var tilnefnd sem besta heimildarmyndin á Evrópsku kvikmyndaverðlaununum sama ár.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×