Lífið samstarf

Listahátíð í Hörpu

Verk Önnu Þorvaldsdóttur, In the Light of Air, verður heimsfrumflutt í Hörpu á sunnudaginn.
Verk Önnu Þorvaldsdóttur, In the Light of Air, verður heimsfrumflutt í Hörpu á sunnudaginn.
Fjöldi viðburða á Listahátíð í Reykjavík fer fram í tónlistarhúsinu Hörpu. Þeirra á meðal eru In the Light of Air, heimsfrumflutningur á nýju verki eftir Önnu Þorvaldsdóttur, en verk hennar hafa hlotið margvísleg verðlaun og viðurkenningar.

Það var hinn virti bandaríski nútímatónlistarhópur International Contemporary Ensemble (ICE) frá New York sem pantaði tónverkið hjá Önnu sem nú verður flutt í Norðurljósasal Hörpu á sunnudaginn. „Eina beiðni þeirra var að verkið yrði nógu langt fyrir heila tónleika. Ég réð sjálf hljóðfæraskipan og ákvað að hafa hljóðfærin aðeins fimm svo auðveldara væri að ferðast með verkið,“ segir Anna en verkið er fyrir víólu, selló, hörpu, píanó og slagverk. Auk þess koma tveir tæknimenn að uppsetningunni, enda er ljósainnsetning hluti af verkinu.

„Ljósainnsetningin er mjög fíngerð og stýrist af flutningi hljóðfæraleikaranna og andardrætti þeirra,“ lýsir Anna sem einnig hannaði sjálf innsetningu úr klakaböndum listakonunnar Svönu Jósepsdóttur. „Þetta eru sérstakar málmplötur og ég fékk eina slíka eftir Svönu í jólagjöf. Mér fannst hún hljóma svo fallega og ákvað því að biðja Svönu um að smíða fyrir mig plötur í mörgum mismunandi stærðum og nota í innsetningu. Á ákveðnum tímapunkti í verkinu er síðan spilað á klakaböndin.“

Anna segir nokkra áskorun hafa legið í því að semja 45 mínútna verk enda hafi hún aldrei gert það áður. „Maður þarf að hugsa strúktúr og framvindu svo verkið sé í senn náttúrulegt en samt þannig að hver kafli hafi sitt sérstaka yfirbragð,“ segir hún.

Viðburðir á Listahátíð í Reykjavík sem fram fara í Hörpu

22. maí kl. 20. – Norðurljós

Kammersveit Reykjavíkur: Pierrot-prójektið. Á opnunartónleikum Listahátíðar verður flutt verkið Pierrot lunaire eftir Arnold Schönberg.

23. maí kl. 19.30 – Eldborg

Mahler nr. 3 í flutningi Sinfóníuhljómsveitar Íslands.

24. maí kl. 16. – Norðurljós

Þrjár Shakespeare-sonnettur: Á tónleikum Kammerkórs Suðurlands verða frumfluttar á Íslandi þrjár Shakespeare-sonnettur eftir breska tónskáldið Sir John Tavener.

24. maí kl. 20 – Eldborg

Bryn Terfel: Velski bassabarítónsöngvarinn Bryn Terfel er á meðal ástsælustu söngvara samtímans.

24. maí kl. 21 – Silfurberg

Lee Ranaldo & Leah Singer: Sight Unseen er samvinnuverkefni hjónanna Lee Ranaldo og Leuh Singer þar sem tónlist og myndbandsverk fléttast saman. Lee Ranaldo er best þekktur sem gítarleikari Sonic Youth.

25. maí kl. 20 – Norðurljós

In the Light of Air: ICE Ensemble & Anna Þorvaldsdóttir.

29. maí kl. 20 – Eldborg

Khatia Buniatishvili: Georgíski píanóleikarinn Khatia Buniatishvili hefur vakið mikla athygli á undanförnum árum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×