Skoðun

Hvers vegna er RIFF mikilvæg fyrir fjölmenningarsamfélagið?

Ottó Tynes skrifar
Það er hægt að deila um hvort alheimsvæðing sé jákvæð framför eða ekki en engu að síður er hún augljós staðreynd. Helsta afleiðing alheimsvæðingarinnar á samfélög er óhjákvæmileg blöndun kynþátta, trúarbragða og ólíkra menningarheima. Þetta er það sem almennt er kallað fjölmenning. Sumir eiga bágt með að samþykkja slíka blöndun og einblína á neikvæðar hliðar hennar. Þeir álíta sig ekki endilega fordómafulla; hafa ekkert á móti „þessu fólki“ eða ólíkum viðhorfum og siðum – en eru oftar en ekki þeirrar skoðunar að það sem er öðruvísi eða ólíkt því sem þeir eiga að venjast eigi betur heima annarstaðar. Oft eru þessi viðhorf skilgreind sem fordómar.

Ég leyfi mér að fullyrða að það er sjaldnast hrein illska sem liggur að baki slíkum fordómum. Ástæðan er miklu frekar skortur á skilningi, umburðarlyndi og þekkingu á því sem telst vera öðruvísi. Þar að auki er margt sem hefur áhrif á þessar skoðanir fólks og nægir þar að nefna einhæfar staðalmyndir ólíkra menningar- og trúarhópa sem birtast okkur í fjölmiðlum og vestrænni dægurmenningu – þ.á.m. í kvikmyndum.

Enginn efast um áhrifamátt kvikmyndanna. Hér á landi getum við nálgast afþreyingu í hæsta gæðaflokki en vert er að benda á að íslensk afþreying er í aðra röndina hálfgerð framlenging á vestrænni dægurmenningu. Það mætti hæglega færa fyrir því rök að heimssýnin sem birtist í þessu afþreyingarefni sé einhliða og endurspegli ekki þann menningarlega fjölbreytileika sem þrífst hérlendis (eða bara hvar sem er).

Upplýsandi reynsla

Við sem störfum hjá Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík (RIFF) erum sannfærð um að upplifunin við að horfa á þær kvikmyndir sem sýndar eru á hátíðinni séu oftar en ekki upplýsandi og áhrifamikil reynsla sem áhorfendur taki með sér út í lífið. Kvikmyndahátíðin RIFF hefur þá sérstöðu að sameina ólíka menningarheima og býður gestum sínum inn í alþjóðlega veröld sem endurspeglar áhugaverðar sögur frá fjölbreytilegum og ólíkum samfélögum. Þannig viljum við meina að hátíðin stuðli á ákveðinn hátt að víðsýni og dragi jafnvel úr fordómum fyrir því sem kann að þykja öðruvísi.

Í fjölmenningarsamfélagi eins og því sem er á Íslandi er nauðsynlegt að rækta umburðarlyndi og skilning gagnvart samborgurum sínum. Það er ekki bara skynsamlegt og réttlátt heldur snýr einnig að grundvallarmannréttindum. Við hjá RIFF kvikmyndahátíð erum stolt af því að geta miðlað ólíkum menningarheimum, viðhorfum og sögum til Íslendinga á alþjóðlegum vettvangi. Við vonumst því til að sjá sem flesta á RIFF-hátíðinni í september.




Skoðun

Sjá meira


×