Skoðun

Bútateppið

Silja Dögg Gunnarsdóttir skrifar
Hver einstaklingur er einstakur og fólkið sem vill búa á Íslandi kemur alls staðar að úr heiminum. Einstaklingar með ólíkan litarhátt, menningu, trúarbrögð og hugmyndir. En þetta fólk á það sameiginlegt að vera manneskjur sem vilja búa á Íslandi og eignast gott líf. Nýtt tækifæri.

Góðir starfskraftar

Þegar Íslendingar rekja ættir sínar með aðstoð Íslendingabókar þá kemur í ljós að við erum meira og minna skyld í a.m.k. 8. ættlið. Síðan gerist það fyrir nokkrum áratugum að hópar fólks fara að koma hingað til lands. Víetnamar, Filippseyingar og nú síðustu ár hefur fjöldi Pólverja flutt hingað, svo eitthvað sé nefnt. Ég get fullyrt að „nýju Íslendingarnir“ hafa staðið sig feikilega vel í að aðlagast og leggja sitt af mörkum til þjóðfélagsins. Fólkið er almennt vinsælir starfskraftar og margir hverjir hafa stofnað eigin fyrirtæki hér á landi.

Kærleikurinn

Kærleikurinn er inntak allra trúarbragða. Afbökun trúarbragða hefur hins vegar átt sér stað öldum saman og misnotkun þeirra. Kristin trú og kristnir trúarleiðtogar eru þar síður en svo undanskildir. Almennt eru Íslendingar umburðarlyndir og vilja vel. Því miður eru alltaf einhverjir sem ala á ótta, hatri og nærast á neikvæðri umræðu. Uppbyggileg og málefnaleg umræða er það sem við þurfum, hvort sem það er um innflytjendamál, trúarbrögð eða annað. Mótun samfélagsins og sú stefna sem við viljum taka í þeim efnum er okkur öllum mikilvæg.

Litríkara og skemmtilegra

Nágrannaþjóðir okkar hafa mun lengri reynslu en við af málefnum innflytjenda. Þessar þjóðir hafa þegar mótað sér stefnu eða eru í þeirri vinnu. Eitthvað hefur betur mátt fara en einnig er margt sem vel hefur verið gert. Það er kominn tími til að við skoðum vandlega hvað nágrannar okkar hafa verið að gera og nýtum okkur þeirra reynslu til frekari uppbyggingar samfélags okkar. Fjölbreytni er af hinu góða. Hún eykur hagvöxt og gerir samfélagið litríkara og fallegra, eins og stórkostlegt bútateppi sem prýði er að. Ég ætla að beita mér fyrir því á næsta þingi að hafist verði handa við þetta aðkallandi og mikilvæga verkefni.




Skoðun

Sjá meira


×