Lífið

Þekktir fatahönnuðir á leið til landsins

Adda Soffía Ingvarsdóttir skrifar
Sif Baldursdóttir verkefnastjóri segir hátíðina einstaklega veglega í ár.
Sif Baldursdóttir verkefnastjóri segir hátíðina einstaklega veglega í ár. Vísir/Valli
Uppskeruhátíð Fatahönnunarfélags Íslands verður haldin föstudaginn 21. nóvember. Í ár verður hátíðin einstaklega vegleg og verður áherslan lögð á uppbyggingu tískufyrirtækja á norrænum slóðum.

„Í ár fáum við hinn sænska Roland Hjort, yfirhönnuð og eiganda fatamerkisins WHYRED, til okkar. Hann mun deila sinni reynslu, en fyrirtæki hans fagnar 15 ára starfsafmæli í ár. Að auki kemur hin færeyska Barbara í Gongini til okkar og mun hún segja sína sögu af stofnun og rekstri tískufyrirtækis á norrænum slóðum,“ segir Sif Baldursdóttir, meðstjórnandi Fatahönnunarfélags Íslands og verkefnastjóri uppskeruhátíðarinnar. Auk þeirra munu forsvarsmenn Nordic Fashion Association koma og fjalla um uppbyggingu tískubransans í heild á Norðurlöndunum.

Tilgangur hátíðarinnar er að efla samheldni innan fagsins, sem er frekar ungt hér á landi, og skapa vettvang fyrir faglega umræðu. Á hverju ári útskrifast fjöldi ungra hönnuða bæði frá Listaháskóla Íslands og frá skólum erlendis.

„Margir fatahönnuðir vilja ná sér í reynslu erlendis eða stofna sín eigin tískufyrirtæki á Íslandi. Markaðurinn hér heima er óneitanlega lítill og því er mikilvægt fyrir íslenska hönnuði að komast inn á erlendan markað líka. Því þykir okkur afar mikilvægt að fá til landsins reynslumikið fólk úr faginu sem getur deilt sinni reynslu og stækkað tengslanet hönnuðanna,“ segir Sif.

Hún segir þó nokkra vitundarvakningu hafa orðið meðal almennings um fatahönnun á Íslandi og um hönnun almennt. „Við finnum fyrir því að almenningur hefur meiri áhuga á íslenskri fatahönnun og hefur betri þekkingu á henni. Einnig hefur Hönnunarmars skipt sköpum við að vekja áhuga almennings á hönnun almennt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×