Leikjavísir

Bardagaveisla í boði Zeldu

Tinni Sveinsson skrifar
Zelda, Link og félagar berjast af miklum móð í Hyrule Warriors.
Zelda, Link og félagar berjast af miklum móð í Hyrule Warriors.
Hyrule Warriors. Bardagaleikur. Wii U.



Hyrule Warriors er bardagaleikur sem byggir á Zeldu-leikjunum en flokkast þó ekki sem „alvöru“ Zeldu-leikur heldur hliðarafurð. Hann er samstarfsverkefni Nintendo og fyrirtækisins Koei Tecmo, byggir á grunni Dynasty Warriors-leikjanna og flokkast einnig til þeirrar leikjaraðar. Í Hyrule Warriors berjast spilarar við ógrynni óvina með það að markmiði að stöðva ill öfl í því að ná yfirráðum í Hyrule (en ekki hvað?).

Leikurinn er skemmtilegur og heldur manni við efnið með áhugaverðum söguþræði. Allar helstu hetjurnar eru til staðar og eru þar Link og Zelda vitanlega í fararbroddi. Sérstaklega er ánægjulegt að finna kunnuglegar fjársjóðskistur og vopn. Einnig þegar leikurinn leiðir mann í borð sem byggja á gömlum Zelda-leikjum, nánar tiltekið Twilight Princess, Skyward Sword og Ocarina of Time. Þar skjóta gamalkunnar persónur upp kollinum og spila inn í atburðarásina.

Eftir því sem líður á leikinn safnar maður sér smám saman fleiri persónum til að spila og er þar sniðugt að geta einnig valið óvini sem hafa fallið í valinn og nýtt sér eiginleika þeirra og vopnabúr. Alls eru persónurnar sem hægt er að velja úr þrettán og er hægt að dunda sér við að auka styrk þeirra og hæfileika.

Bardagarnir í Hyrule Warriors eru nokkuð einhæfir með miklum sverðasveiflum. Einhvern veginn virkar þetta allt samt ágætlega. Ekki síst þar sem leikurinn er mjög góður í tveggja manna spili þar sem reynir oft á útsjónarsemi, herkænsku og góða samvinnu. Þá er árásarfimi persónanna sem hægt er að velja úr oft mjög tilkomumikil. Maður nýtur þess að sigra óvini með loftköstunum sem hægt er að framkalla með fjarstýringunni.

Kjörinn leikur fyrir aðdáendur Zeldu sem bíða spenntir eftir risaleiknum sem von er á fyrir Wii U á næsta ári.

Hér fyrir neðan má sjá hálftíma langt myndband þar sem spilarinn Zack Scott leiðir okkur í gegnum leikinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×