Leikjavísir

Þróun í rétta átt

Kjartan Hreinn Njálsson skrifar
Ef þú ætlar að spila hinn frábæra Evolve, notaðu hljóðnemann.
Ef þú ætlar að spila hinn frábæra Evolve, notaðu hljóðnemann. VÍSIR/TURTLEROCK
Leikjahönnuðirnir hjá Turtle Rock Studios kunna að búa til tölvuleiki. Þeir sönnuðu það með Left 4 Dead, einum besta fjölspilunarleik fyrr og síðar. Áherslan á samskipti spilara er einnig í Evolve en hér gengur framleiðandinn skrefinu lengra.

Spilarinn velur milli fjögurra flokka veiðimanna elta skrímslið á fjarlægri plánetu. Flokkarnir eru afar fjölbreyttir. Hver og einn er ómissandi ef markmiðið er að drepa skrímslið. Þannig er samstarf spilara nauðsynlegt. Spilarinn getur síðan valið að stjórna skrímslinu og um leið breytist Evolve í sataníska útgáfu af Pacman. Skrímslið drepur og étur til að komast á næsta stig þróunar. Þegar 3. stigi er náð er skrímslið nánast ósigrandi.



Spilunin er frábær og sömuleiðis hönnun umhverfisins og borðanna. Sagan er þó varla til staðar sem er miður og óheyrilegt framboð af niðurhalsefni (DLC) við útgáfu er síðan hálfgerð móðgun við spilara.

Stóra vandamálið aftur á móti er mannlegi þátturinn. Afar fáir spilarar nota hljóðnemann, örfáir í raun og um leið hrynja samskipti spilara. Ef þú ætlar að spila hinn frábæra Evolve, notaðu hljóðnemann.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×