Innlent

Kanarnir í Jökulsárlóni höfðu engan áhuga á Darwin-verðlaununum

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Skjámynd úr myndbandi Þórarins frá því í morgun.
Skjámynd úr myndbandi Þórarins frá því í morgun.
„Þetta er með því grófara sem maður hefur séð,“ segir Þórarinn Jónsson sem var á ferð með hóp ljósmyndara við Jökulsárlón. Líkt og Vísir greindi frá í morgun blasti við Þórarni og félögum tveir fáklæddir strákar að leika sér á klakanum á meðan kærusturnar hlógu sig máttlausar.

Þórarinn segir þetta hafa verið um níuleytið í morgun en fáir voru á ferli. Fólkið hafi verið að fíflast en viðhorfsbreyting hafi orðið er Þórarinn benti þeim á hve djúpt lónið væri auk þess sem það væri fjögurra gráðu kalt vatnið.

„Ég spurði þau hvort þau könnuðust við Darwin og þróunarkenninguna,“ segir Þórarinn hlæjandi en hann telur að um bandaríska ferðamenn hafi verið að ræða. Þau hafi áttað sig á skilaboðunum og ekki talið skynsamlegt að gera tilkall til Darwin-verðlaunanna þetta árið.

Umræða hefur spunnist um uppátæki Kananna í Facebook-hópnum Bakland Ferðaþjónustunnar. Sýnist sitt hverjum. Sumir tala um heimskingja sem verði alltaf til og aðrir benda á að fólkið hafi einfaldlega verið að skemmta sér og gera sér eflaust grein fyrir hættunni.

„Fólk er alltaf að deyja. Fólk hefur dáið í fjallgöngum, á Esjuna eða Herðubreið t.d. Fólk hefur dáið í vélsleðaferðum. Fólk hefur dáið í fjallgöngum, í ísklifri, í íshellum, í fjöruferðum, og jafnvel í bílferðum,“ segir leiðsögumaðurinn Börkur Hrólfsson.

„Á hverju ári deyr fólk fyrir asnaskap og vegna fákunnáttu. Við ættum kannski að láta fólk gangast undir greindarpróf áður en það kemur hingað. Svo eru sumir (ansi margir jafnvel) sem sækjast eftir áhættu og að taka sénsa.“

Þórarinn tekur að vissu leyti undir orð Barkar. Það væri samt ágætt ef hægt væri að koma í veg fyrir með einhverjum hætti að fólk dræpi sig.

„Það endar með því að einhver drepur sig þarna,“ segir Þórarinn.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×