Viðskipti innlent

Málatilbúnaður sérstaks saksóknara „heimspekileg þversögn”

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Sigurður Einarsson ásamt verjanda sínum.
Sigurður Einarsson ásamt verjanda sínum. vísir/ernir
Gestur Jónsson, verjandi Sigurðar Einarssonar, tók í málflutningsræðu sinni í dag að öllu leyti undir málflutning Harðar Felix Harðarsonar, verjanda Hreiðars Más Sigurðssonar, sem flutti málflutningsræðu sína í morgun. Gestur fer fram á frávísun málsins og til vara fram á sýknu.

Sigurður og Hreiðar eru báðir á meðal ákærðu í markaðsmisnotkunarmáli Kaupþings en alls eru níu ákærðir í málinu fyrir markaðsmisnotkun og/eða umboðssvik vegna viðskipta með hlutabréf í bankanum.

„Aldrei gert neitt ólöglegt en samt eru viðskiptin ólögleg”

Í ræðu sinni gerði Gestur meðal annars málatilbúnað sérstaks saksóknara að umtalsefni. Hann sagði ekkert ólögmætt hafa átt sér stað með viðskipti Kaupþings í eigin bréfum, hvort sem að það sneri að kaupum bankans á þeim eða sölum til eignarhaldsfélaga, en fyrir þetta tvennt er ákært í málinu.

Þá er einnig ákært fyrir lán sem bankinn veitti eignarhaldsfélögunum til að kaupa bréfin með veði í bréfunum sjálfum. Um þetta allt sagði Gestur:

„Það eru engin lög eða reglur sem banna sölu eigin bréfa til eignarhaldsfélaga. Það eru engin lög eða reglur sem banna bankanum að selja bréf með fullri fjármögnun. Það eru engin lög eða reglur sem banna bankanum að tak veð í bréfunum sjálfum. Salan er lögmæt, fjármögnunin er lögmæt [...] Það eru engar reglur um tilkynningar brotnar. [...] Það er aldrei gert neitt ólöglegt en samt eru viðskiptin ólögleg. Þetta er heimspekileg þversögn.”

Mikið fjallað í fjölmiðlum um „krassandi búta” úr símtölum

Gestur gagnrýndi svo einnig sönnunarfærslu ákæruvaldsins fyrir dómi, sem hann sagði að yrði að vera hlutlæg. Vísaði hann meðal annars til spurninga sem lögð voru fyrir vitni í málinu.

„Almenn vitni má ekki spyrja matskenndra spurninga en ítrekað var gengið eftir því að fá skoðun þeirra ekki bara á eigin gjörðum heldur líka á gjörðum. annarra Svo hafa verið spilaðir hér krassandi bútar úr símtölum og borin undir vitnin.”

Verjandinn sagði svo að mikið hefði verið fjallað um þessi símtöl í fjölmiðlum sem flutt hafa fréttir af málinu. Sagði Gestur slíkar fréttir því miður til þess fallnar að skapa ákveðin hughrif.

Yfirlýsing saksóknara honum til minnkunar

Þá gagnrýndi Gestur saksóknara harðlega fyrir að lýsa því yfir í málflutningsræðu sinni í gær að Sigurður hefði játað markaðsmisnotkun fyrir dómi og sagði að sú yfirlýsing hefði samstundis orðið fréttaefni.

Fullyrti Gestur að saksóknari hefði haft rangt eftir skjólstæðingi sínum og yfirlýsing saksóknarans væri honum til minnkunar.

Gestur sagði svo að saksóknari færi með ósannindi þegar hann talaði um að Sigurður hefði veitt samþykki sitt fyrir viðskiptunum og lagt línur varðandi þau.

„Þetta eru orð án innihalds. [...] [Saksóknaranum] ber að sýna hlutlægni og virða sannleikann í öllu sem hann gerir.”

Málflutningur heldur áfram á morgun og gert er ráð fyrir að honum ljúki á föstudag.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×