Leikjavísir

Ávanabindandi uppbygging

Samúel Karl Ólason skrifar
Leikurinn er skemmtilegur og ávanabindandi og er grafík leiksins góð miðað við að um snjalltækjaleik er að ræða.
Leikurinn er skemmtilegur og ávanabindandi og er grafík leiksins góð miðað við að um snjalltækjaleik er að ræða. Vísir/Bethesda
Fallout Shelter er snjalltækjaleikur sem gengur út að byggja neðanjarðarbyrgi þar sem eftirlifendur kjarnorkustyrjaldar geta haldið til. Jörðin er orðin að geislavirkri auðn og þar halda til hættuleg stökkbreytt dýr sem og hættulegt fólk.

Leikurinn er skemmtilegur og ávanabindandi og er grafík leiksins góð miðað við að um snjalltækjaleik er að ræða. Leikurinn kom fyrst út fyrir iOs stýrikerfi Apple í júní og Android nú í ágúst.

Fallout Shelter hefur ekki mikla dýpt. Hann gengur út á að safna nýju fólki og auka framleiðslugetu byrgisins og að verja það gegn árásum. Fleira fólk, meiri framleiðsla og betri varnir. Aftur og aftur. Hann býður þó upp á að senda íbúa byrgisins út í auðnina til þess að safna peningum (flösku töppum), vopnum og klæðnaði.

Þær sendiferðir bjóða oft á tíðum upp á töluverðan húmor, sem þeir sem þekkja Fallout-heiminn ættu að kannast við.

Það sem undirritaður saknar þó mest í leiknum er að geta ekki sett upp hinar ýmsu tilraunir á íbúum byrgisins, eins og frægt er í Fallout heiminum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×