Erlent

Fimmur, misheppnaðir brandarar og fleira úr kappræðum Repúblikana

Atli Ísleifsson skrifar
Ben Carson og Donald Trump í kappræðum Repúblikana.
Ben Carson og Donald Trump í kappræðum Repúblikana. Vísir/AFP
Bandarískir fjölmiðlar virðast sammála um að Donald Trump hafi nokkrum sinnum misstigið sig í kappræðum Repúblikana sem voru sýndar á sjónvarpsstöðinni CNN í gærkvöldi.

Frambjóðendurnir Jeb Bush og Carly Fiorina þóttu standa sig með ágætum þar sem þau nýttu sér að Trump var í þeirri óvenjulegu stöðu að vera í vörn mest allt kvöldið.

CNN hefur tekið saman nokkur af eftirminnilegustu atvikum gærkvöldsins sem sjá má að neðan.

Trump gefur Bush fimmu Aðspurður um hvaða dulnefni frambjóðendur vildu vera kallaðir af leyniþjónustunni svaraði Bush: 'Everready“ og útskýrði það með að segja að það væri orkumikið nafn. Trump hefur í viðtölum gagnrýnt Bush fyrir að vera 'orkulítill“ frambjóðandi og brást úr mikill hlátur í salnum eftir að Bush lét orðin falla. Trump brosti og gaf í kjölfarið Bush 'fimmu“.
Þessu var þó ekki lokið þar sem skömmu síðar reyndi Trump að gefa frambjóðendanum Ben Carson fimmu eftir að sá síðarnefndi sagðist hafa varað George Bush, þáverandi Bandaríkjaforseta, við að heyja annað stríð í Írak. Úr varð undarlegt og vandræðalegt handarband þeirra Carson og Trump.
Andlit Fiorina Þegar fundarstjóri gaf frambjóðendanum Carly Fiorona tækifæri að svara orðum Trump um andlit hennar svaraði hún því til að 'allar konur í Bandaríkjunum hafi greinilega heyrt hvað Trump hafi sagt.“ Í viðtali við tímaritið Rolling Stone hafði Trump sagt um Fiorina: 'Sjáið þetta andlit! Myndi einhver kjósa þetta?“ Í stað þess að svara orðum Fiorina eða biðjast afsökunar sagði Trump: 'Mér finnst hún vera með fallegt andlit og hún er falleg kona.“
Vatnsflaska Marco Rubio 'Ég veit að Kalifornía á við vatnsskort að stríða. Og þess vegna var ég ákvað ég að koma með mitt eigið vatn,“ sagði Marco Rubio, öldungadeildarþingmaður Flórída, og tók fram litla vatnsflösku. Áhorfendum virtist ekki skemmt yfir orðum Rubio, sem líklegast voru ætluð sem brandari.
Beindu myndavélinni út í sal 'Ég vil að þið beinið myndavélinni af mér og út í sal,“ sagði Chris Christie, ríkisstjóri New Jersey. Farið var að ummælum Christie sem bað þá áhorfendur sem þykir líf sitt hafa batnað í valdatíð Obama forseta að lyfta höndum. Enginn gerði það og sagði Christie að það væri einmitt ástæða þess að hann byði sig fram til forseta. Þetta virtist þó engan veginn hafa haft þau áhrif sem Christie hafði vonast eftir, þar sem áhorfendurnir sátu allir hljóðir. Misheppnaður brandari Eftir að Trump hafði sagt að öldungadeildarþingmennirnir þrír sem væru með honum á sviði bæru einhverja ábyrgð á aðgerðarleysi Obama forseta þegar kæmi að uppgangi ISIS, sneri þáttastjórnandinn sér loks að Ted Cruz, öldungadeildarþingmanni Texas. 'Þú ert þriðji öldungadeildarþingmaðurinn,“ sagði þáttastjórnandinn. Þá svaraði Cruz: 'Ég tel mig vera fyrsta öldungadeildarþingmanninn,“ sagði Cruz, en enginn hló að orðum hans.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×