Bíó og sjónvarp

RIFF kvikmyndakviss

Stefán Árni Pálsson skrifar
RIFF fer að stórum hluta fram í Bíó Paradís.
RIFF fer að stórum hluta fram í Bíó Paradís. vísir/stefán
RIFF mun hita upp fyrir 12. RIFF-hátíðina sem hefst þann 24. september með kvikmyndakvissi í samvinnu við Loft Hostel og Nexus klukkan 20 í kvöld.

Kvissið verður með sérstöku Star Wars ívafi í tilefni af útkomu nýrrar Star Wars myndar nú um jólin. Þá verða jafnframt spurning um allt milli himins og jarðar úr heimi kvikmyndanna. Veitt verða vegleg verðlaun frá RIFF, inneignir í versluninni Nexus og í fljótandi formi frá Loft Hostel fyrir stigahæstu þrjú liðin.

Jafnframt verður lið af handahófi í neðri sætum dregið út og hreppir vinninga. Keppendur eru að hámarki fjórir í liði. Spyrlar eru þau Anna Ástildur Thorsteinsson og Björn Teitsson. Í ljósi þemans eru keppendur jafnframt hvattir til að mæta í klædd í anda Star Wars og verða veitt sérstök aukaverðlaun fyrir besta búninginn.

Keppnin mun öll fara fram á ensku og hefst klukkan 20 á Loft Hostel.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×