Lífið

Piers Handling gestur á RIFF

Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar
Piers Handling, forstjóri Toronto-kvikmyndahátíðarinnar.
Piers Handling, forstjóri Toronto-kvikmyndahátíðarinnar. Vísir/Getty
Meðal gesta á RIFF, Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík, verður Piers Handling, forstjóri Toronto-kvikmyndahátíðarinnar.

„Það er náttúrulega mikil heiður og gaman. Hann er náttúrulega búin að stýra Torontohátíðinni í mörg ár og það verður gaman að fá svona stórlax til landsins. Hann er svona þungavigtarmaður í heimi kvikmyndanna," segir Hrönn Marinósdóttir stjórnandi RIFF.

Handling bætist í hóp þeirra Arnauds Gourmelen sem er yfir flokknum Directors Fortnight á kvikmyndahátíðinni í Cannes, Frederiks Boyer, listræns stjórnanda Tribeca-hátíðarinnar en Boyer er formaður dómnefndar í aðalflokk RIFF í ár, og Helgu Stephensen sem er fyrrverandi stjórnandi Toronto International Film Festival og heiðursformaður RIFF en hún hefur sótt hverja RIFF hátíð frá upphafi. Verða því fulltrúar fjögurra af tíu stærstu kvikmyndahátíðum í heimi á RIFF í ár.

Af þessu tilefni hefur verið boðað til umræðna undir yfirskriftinni Að velja á kvikmyndahátíð og tekur Giorgio Cosetti, dagskrárstjóri RIFF og dagskrárstjóri Feneyjadaga á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum, einnig þátt í umræðunum sem fara fram þann fyrsta október í Norræna húsinu og hefjast klukkan 12.00. Rætt verður um hlutverk og áhrif dagskrárstjóra á ferðalag kvikmynda um heiminn og hvaða þættir það eru sem móta það hlutverk.

Líkt og Fréttablaðið greindi frá verður kanadíski leikstjórinn David Cronenberg heiðursgesur hátíðarinnar í ár og verður maraþonsýning á eldri hrollvekjum hans og einnig mun leikstjórinn sitja fyrir svörum í sérstöku meistaraspjalli. Annar heiðursgestur hátíðarinnar verður þýski leikstjórinn Margarethe Von Trotta og verða myndir hennar The Misplaced World, Rosenstrasse og Marianne and Julianne sýndar.

RIFF hefst þann 24. september næstkomandi og er hægt að kynna sér dagskrá hátíðarinnar nánar inn á Riff.is. Nóg verður um að vera og fjöldi fjölbreyttra viðburða. Í kvöld verður hitað upp fyrir hátíðina með kvikmyndakvissi, eða pub-quiz, á Lofti Hosteli og hefst það klukkan 20.00. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×