Lífið

Sjónræn matarveisla á RIFF

Stefán Árni Pálsson skrifar
Myndin var tekin árið 2013 frá samskonar viðburði.
Myndin var tekin árið 2013 frá samskonar viðburði. vísir
,,Þetta er endurtekning á viðburði sem við stóðum fyrir árið 2013 og þótti heppnast alveg einstaklega vel,“ segir Jóhann Alfreð Kristinsson, kynningarstjóri RIFF-kvikmyndahátíðarinnar sem munu standa fyrir sjónrænni matarveislu í samstarfi við Borg Restaurant laugardagskvöldið næstkomandi.

,,Þá sýndum við sjö íslenskar stuttmyndir í Gyllta salnum á Borg Restaurant og kokkarnir þar elduðu sérstakan rétt í anda hverrar myndar. Í ár erum við síðan með heimildarmyndina Foodies á dagskrá. Þetta er mynd sem fjallar um helstu matgæðinga og matargagnrýnendur í heimi sem ferðast um heiminn og snæða á bestu veitingastöðum heims. Þetta er fólk sem hreinlega lifir fyrir ekkert annað og eru jafnvel með hundruð þúsunda lesenda á dag og hafa oft örlög staðanna í hendi sér. Það var því alveg borðleggjandi að endurtaka leikinn með þessari mynd. Sælkeraveislu við myndina Sælkerar.”

Tveir af þremur leikstjórum myndarinnar þau Henrick Stockare og Charlotte Landelius verða viðstödd sýninguna.

,,Þeim var boðið hérna í tilefni af sýningum á henni á RIFF og heyrðu af þessari sérsýningu og vildu þá endilega koma á þeim tíma sem hún yrði. Þau munu sitja fyrir svörum eftir sýninguna og gefa smá formála fyrir sýningu.”

Kokkarnir á Borginni vinna nú að því að þróa matseðil í anda myndarinnar en ónefnd stuttmynd verður svo sýnd á undan heimildarmyndinni sem lystauki og munu kokkarnir útbúa forrétt við hana.

,,Salurinn verður þannig uppstilltur að hann nýtist bæði sem kvikmyndahús og veitingastaður.”

Borðhaldið hefst klukkan 19.30 næstkomandi laugardagskvöld og fara borðapantanir fram hjá Borg Restaurant. Takmarkað miðaframboð er í boði og er miðaverð 7900.  






Fleiri fréttir

Sjá meira


×