Menning

Svört kómedía umbreytist í úthverfahrylling

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Leikhópur Geirfugls í verkinu (90) 210 Garðabær.
Leikhópur Geirfugls í verkinu (90) 210 Garðabær.
Þetta er ekki raunveruleiki, heldur svört kómedía sem umbreytist í einhvers konar úthverfahrylling. Gæti gerst í hvaða íslensku bæjarfélagi sem er, þar sem hlutfall efnaðra íbúa er hátt og einhver af allt öðru sauðahúsi flytur inn í. Þá myndast núningur,“ segir Heiðar Sumarliðason, höfundur og leikstjóri (90) 210 Garðabær sem frumsýnt verður í Kassanum í Þjóðleikhúsinu annað kvöld.  

Heiðar kveðst á tímabili hafa verið að hugsa um að láta verkið gerast á einhverjum óræðum stað.

„En þegar fólk fór að leiklesa fannst því sterkara að tilgreina ákveðið bæjarfélag. Það hefði alveg eins getað verið Seltjarnarnes en þar sem ég er Garðbæingur að uppruna fannst mér liggja beinast við að nota minn gamla heimabæ sem sögusvið.“

Vel hefur gengið að selja á leikritið svo nú eru bara miðar eftir á sýningarnar 7. og 12. nóvember. „Það er skemmtilegt hversu viðbrögðin hafa verið góð,“ segir Heiðar.

„Íslenskir áhorfendur vilja gjarnan sjá eitthvað sem þeir kannast við. Þeir eru kannski ekki oft að fá eitthvað sem gerist í garðinum hjá þeim, hér og nú. Fyrir tíu dögum breyttum við kúrsinum talsvert svo ég hugsa að sjaldan hafi verið sett upp jafn nýtt leikrit, þó það sé byggt á þriggja ára vinnu. Við sem stöndum að þessu erum því 100% viss um að þetta sé besta útgáfan af verkinu sem við erum með á sviðinu, enda eiga áhorfendur það skilið.“

Leikarar í sýningunni eru María Heba Þorkelsdóttir, Stefán Hallur Stefánsson, Svandís Dóra Einarsdóttir, Sveinn Ólafur Gunnarsson og Vigdís Másdóttir.

„Þetta er allt fólk sem ég þekkti og flestum hef ég unnið með áður,“ segir Heiðar sem ekki kveðst mæla með því að höfundur leikstýri eigin verki. Því kveðst hann hafa fengið Bjartmar Þórðarson dramatúrg sér til halds og trausts.

Þetta er önnur sýningin sem Leikfélagið Geirfugl setur upp. Sú fyrsta var Segðu mér satt eftir Hávar Sigurjónsson.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×