Erlent

Segir konur vilja vera í búrkum - Myndband

Samúel Karl Ólason skrifar
Donald Trump.
Donald Trump. Vísir/EPA
Donald Trump, sem fer nú mikinn vegna forvals Repúblikana á forsetaframbjóðenda flokksins, segir að konur vilji vera í búrkum. Þannig komist þær meðal annars hjá því að farða sig. Þetta sagði Trump við stuðningsmenn sína í New Hampshire en hann var að tala um að Bandaríkin ættu að hætta að skipta sér af í Mið-Austurlöndum.

Tump sagðist hafa séð viðtal við konu sem sagði að þær vildu vera í búrkum og að þeir ættu ekki að skipta sér af því.

„Af hverju í andskotanum erum við að skipta okkur af því? Staðreyndin er sú að það er auðvelt. Þú þarft ekki að farða þig. Sjáið hvað allir eru fallegir í salnum, en væri ekki auðveldara að hylja sig? Væri það ekki auðvelt?“ sagði Trump, samkvæmt CNN.

Þar að auki sagði Trump að ef hann væri kona, væri hann til í að vera í búrku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×