Menning

Erlendir miðlar segja RIFF vera stórkostlega upplifun

Stefán Árni Pálsson skrifar
Mynd frá lokakvöldinu á RIFF.
Mynd frá lokakvöldinu á RIFF. vísir
„RIFF reyndist vera eins stórkostleg upplifun og mögulegt er að vona,“ sagði kanadíski kvikmyndagagnrýnandinn James Gorber í nýlegu viðtali við CTV sjónvarpsstöðina sem, hefur verið vinsælasta sjónvarpsstöð Kanada undanfarin 13 ár. 

Í viðtalinu ræðir Jason Gorber um þá sérstöku upplifun að vera staddur á kvikmyndahátíð mitt á milli Ameríku og Evrópu.

Orðspor nýafstaðinnar Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík fer víða en heimspressan hefur keppst við að lofa hana. Stórir miðlar á borð við Indiewire, Variety, Screen Daily og Deadline magazine heimsóttu hátíðina í ár og hafa farið fögrum orðum um upplifun sína. Kanadískir fjölmiðlar hafa fjallað mikið um hátíðina en annar heiðursgestur hennar var einmitt hinn kanadíski David Cronenberg.

Í umfjöllun Toronto Film Critics er sagt að það sem aðgreini RIFF frá öðrum minni kvikmyndahátíðum sé umgjörðin. RIFF leggur áherslu á fjölbreytta dagskrá sem er ekki endilega bundin við hefðbundin kvikmyndahús en þar tekur blaðamaður dagsferð á tökustaði stórmynda sem dæmi um einstaka upplifun.

Á vefsíðu Variety er fjallað um þá fjölbreyttu viðburði sem boðið var upp á í ár eins og sundbíó, kvikmyndauppistand og kvikmyndatónleika. En þar segir einnig að vegna velgengni Hrúta og Þrasta núna nýlega, megi segja að Íslensk kvimyndagerð sé komin á kortið í heimi kvikmyndanna.  






Fleiri fréttir

Sjá meira


×