Bíó og sjónvarp

George Lucas tjáir sig um Force Awakens

Samúel Karl Ólason skrifar
George Lucas.
George Lucas. Vísir/EPA
Leikstjórinn George Lucas hefur nú tjáð sig í fyrsta sinn um Star WarsThe Force Awakens. Hann er tiltölulega nýbúinn að sjá myndina. Kathleen Kennedy, framkvæmdastjóri Lucasfilm sagði nýverið frá því að Lucas hefði séð myndina og að honum hefði „líkað myndin“.

Blaðamenn Vulture eltu Lucas uppi og spurðu hann sjálfan. Svarið er vægast sagt loðið.

„Ég held að aðdáendur muni elska hana,“ sagði Lucas. „Þetta er þess konar mynd sem þau hafa beðið eftir.“

George Lucas sagði sem sagt ekki að hann hefðu kunnað að meta myndina og virðist hafa vandað svarið. Hann seldi Lucasfilm til Disney fyrir nokkrum árum, en þá var hann byrjaður á undirbúningsvinnu fyrir þrjár nýjar myndir.

Disney kunni hins vegar ekki að meta þá leið sem Lucas vildi fara og hefur hann ekkert komið að framleiðslu nýju myndanna. Star Wars: The Force Awakens verður frumsýnd þann 17. desember.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×