Lífið

Steindi leikur í sinni eigin Star Wars mynd: Mamman með leiksigur

Stefán Árni Pálsson skrifar
Virkilega gott myndband.
Virkilega gott myndband. vísir
„Ég er mikill Star Wars aðdáandi og hef alltaf verið,“ segir Steinþór Hróar Steinþórsson, betur þekktur sem Steindi Jr., en hann leikur í sinni eigin útgáfu af Star Wars fyrir verslunina iStore og fer einfaldlega á kostum.

„Þegar þeir hjá iStore hringdu í mig og spurðu hvort ég væri ekki til í þetta, þá þurfti ég ekkert að hugsa mig lengi um. Að fá að gera mína eigin útgáfu af Star Wars mynd? Ég var mjög til í það og fannst það hljóma mjög vel.“

Nýja Star Wars myndin, The Force Awakens verður frumsýnd hér á landi á miðnætti í kvöld. Sigríður Erna, móðir Steinþórs, kemur við sögu í myndbandinu og fer hún á kostum eins og vanalega.

„Hún fer með algjöran leiksigur. Ég er nokkuð viss um að hún hafi leikið í öllum seríum sem ég hef gert og stendur sig alltaf vel. Þegar ég var unglingur þá var ég allan daginn að gera stuttmyndir og hún fékk oft að vera með, en ekkert endilega þegar hún vildi það,“ segir Steinþór en neðst í fréttinni má einmitt sjá skets frá árinu 1999 sem Steindi gerði. Þá vakti hann mömmu sína á heldur óskemmtilegan hátt.

Hann segist sjálfur vera fara á miðnætursýningu á Star Wars í kvöld og er mjög spenntur.

Viltu vinna miða á Star Wars The Force Awakens?Við hjá iStore ætlum að gefa 20 miða á sérstaka miðnætursýningu í kvöld...

Posted by iStore Íslandi on 16. desember 2015
Steindi JR.-Vekur mömmu sína árið (1999.)





Fleiri fréttir

Sjá meira


×