Viðskipti erlent

Tekjur af Star Wars svipaðar tekjum íslenska ríkisins

Sæunn Gísladóttir skrifar
George Lucas hefur hagnast gríðarlega á Star Wars þar sem hann samdi við Fox-myndverið um að eignast allar framhaldsmyndirnar og réttinn af öllu tengdu efni.
George Lucas hefur hagnast gríðarlega á Star Wars þar sem hann samdi við Fox-myndverið um að eignast allar framhaldsmyndirnar og réttinn af öllu tengdu efni. Vísir/Getty
George Lucas, skapari Star Wars, er einn auðugasti maður í Hollywood. Hann hefur hagnast gríðarlega á Star Wars þar sem hann samdi við Fox-myndverið á sínum tíma um að þiggja lægri laun fyrir leikstjórn fyrstu myndarinnar gegn því að eignast allar framhaldsmyndirnar og réttinn á öllu tengdu efni.

Síðan þá hafa heildartekjur alls þess sem tengt er Star Wars numið um 3.700 milljörðum króna. Þetta var meðal þess sem kom fram í máli Björns Bergs Gunnarssonar, fræðslustjóra VÍB, á fundi um fjármál Star Wars í gær.

Fram kom á fundinum að árið 2012 keypti Disney Lucasfilm (þar með talið Star Wars) af George Lucas á um 530 milljarða íslenskra króna, sem er ekki fjarri eignarhlut lífeyrissjóðanna á íslenskum hlutabréfamarkaði, eða um þriðjungur landsframleiðslu Íslands.

Það kemur ef til vill sumum á óvart að 46 prósent af tekjum af Star Wars koma úr leikfangasölu, en einungis 12 prósent úr miðasölu í kvikmyndahúsum. 19 prósent af tekjum koma frá VHS- og DVD-sölu, og 12 prósent frá tölvuleikjum. Nýjasti kaflinn í Star Wars seríunni, Star Wars: The Force Awakens er væntanleg í kvikmyndahús hér á landi í vikunni. Áætlaðar tekjur af Star Wars árið 2016 eru svipaðar fjárlögum íslenska ríkisins.

Disney sér mikla möguleika í Star Wars. Hafist verður handa við smíði tveggja gríðarstórra skemmtigarða árið 2016 (í Flórída og Kaliforníu) og næstu sex árin kemur út að minnsta kosti ein mynd á ári. Ef allt gengur upp er áætlað að heildartekjur Star Wars verði yfir 3.000 milljarðar króna, en Disney fær þó að sjálfsögðu ekki allt í vasann. 

Hér fyrir neðan má sjá upptöku af fundinum.

Fjármál Star Wars from Íslandsbanki on Vimeo.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×