Viðskipti innlent

Fjármál Star Wars: Upptaka af fundinum

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Í tilefni frumsýningar Star Wars – The force awakens heldur VÍB fræðslufund um fjármálasögu Star Wars. Björn Berg, fræðslustjóri VÍB, ræðir um kaup Disney á vörumerkinu, leikfangasölu, auð George Lucas og fleira áhugavert.

„Því meira sem maður kafar ofan í þetta því meira heillandi verður þetta. Nýja Star Wars myndin verður frumsýnd í vikunni og búist er við því að hún verði ein sú tekjuhæsta í sögunni,“ segir Björn Berg í viðtali í Fréttablaðinu í dag.

Fundurinn hefst klukkan 17 og stendur í klukkustund. Sýnt verður beint frá fundinum hér á Vísi.

Uppfært

Fundinum er lokið. Hér fyrir neðan má sjá upptökuna.

Fjármál Star Wars from Íslandsbanki on Vimeo.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×