Viðskipti erlent

Force Awakens þarf að afla tvö hundruð milljarða

Samúel Karl Ólason skrifar
J.J. Abrams ásamt aðalleikurum myndarinnar.
J.J. Abrams ásamt aðalleikurum myndarinnar. Vísir/EPA
Til að markaðir líti á Star WarsThe Force Awakens, sem vel heppnaða kvikmynd þurfa tekjur frá myndinni að vera 1,5 milljarður dala eða rétt tæplega 200 milljarðar króna. Þar inn spilar gífurlegur kostnaður Disney við að kaupa Lucasfilm, en framleiðslukostnaður myndarinnar var um 26 milljarðar króna.

Leikstjórinn JJAbrams ber mikið á herðum sér þessa dagana og Steven Spielberg segir hann vera lafandi hræddan.

Disney keypti Lucasfilm og þar með Star Wars árið 2012 fyrir 4 milljarða dala, sem samsvarar um fimm hundruð milljörðum króna miðað við núverandi gengi.

Samkvæmt umfjöllun 60 Minutes var það Steven Spielberg sem stakk upp á að JJAbrams fengi það verkefni að stýra Star Wars skútunni fyrir Disney. Í samtali við fréttamann 60 Minutes segir Spielberg að Abrams sé undir miklu álagi og að hann sé lafandi hræddur.



Þá kemur fram að nú tekjur Force Awakens vegna forsölu séu nú þegar orðnar 50 milljónir dala eða sex og hálfur milljarður króna.

Myndin verður frumsýnd nú á fimmtudaginn og er eftirvæntingin mikil. Hér heima verður myndin sýnd allan sólarhringinn í einhverjum kvikmyndahúsum, eins og í Álfabakka, á Akureyri, Kringlunni og í Smárabíó.

Star Wars allan sólarhringinn í Sambíóunum Álfabakka og Akureyri eftir miðnætti 16. desember. Miðasala er hafin í miðasölum Sambíóanna og á sambio.is.

Posted by Sambíóin Fríðindaklúbbur on Friday, November 27, 2015





Fleiri fréttir

Sjá meira


×