Glamour

Stór snið, pífur og plíserað

Ritstjórn skrifar
Þessi bomber jakki mætti alveg verða okkar
Þessi bomber jakki mætti alveg verða okkar Glamour/getty
Sýning Stellu McCartney olli svo sannarlega ekki vonbrigðum á tískuvikunni í París fyrr í dag. 

Á sýningunni í Palais Garnier voru oversize kjólar, peysur, samfestingar og úlpur voru áberandi ásamt pífum og plíseruðu.

Flauel og silki voru í aðalhlutverki og svo hefði ekki verið McCartney sýning án gallaefnis. 

Litapallettan einkenndist svo af svörtu í bland við dökkbláan, beige og eldrauðan.






×