Glamour

Brooklyn Beckham og Chloe Grace Moretz hætt saman

Ritstjórn skrifar
Á meðan allt lék í lyndi.
Á meðan allt lék í lyndi. GLAMOUR/SKJÁSKOT
Stjörnubarnið Brooklyn Beckham og leikkonan Chloe Grace Moretz eru búin að vera að hittast síðan 2014 en héldu því leyndu þangað til í maí á þessu ári þegar þau loks opinberuðu sambandið. Þau hafa verið dugleg að birta myndir af sér saman á instagram og voru vinsælt par í Hollywood. Ástin virðist þó hafa dvínað því fregnir herma að þau séu hætt saman.

Hin 19 ára Chloe hellti sér í vinnu eftir sambandsslitin, enda nóg að gera hjá leikkonunni. Hún lét ekki á neinu bera og blés fingurkossum framan í ljósmyndara á rauða dreglinum á kvikmyndahátíð í Frakklandi nokkrum dögum síðar.

Keeping her safe

A photo posted by bb (@brooklynbeckham) on






×