Lífið

Myndaveisla frá Miss Universe Iceland: Hildur María kom, sá og sigraði

Stefán Árni Pálsson skrifar
Stórglæsileg keppni.
Stórglæsileg keppni. Myndir/sissi
Keppnin Miss Universe Iceland fór fram í Gamla Bíó í gærkvöldi og var það Hildur María Leifsdóttir sem stóð uppi sem sigurvegari.

Hildur mun því keppa fyrir Íslands hönd í Miss Universe 30. janúar 2017 á Filippseyjum. Ekki hefur íslensk stúlka tekið þátt í keppninni síðan 2009 og verður Hildur því sú fyrsta í átta ár.

Í öðru sæti var Sigrún Eva Ármannsdóttir og í þriðja sæti var Andrea Sigurðardóttir. Hildur María er 23 ára kona úr Kópavoginum sem starfar sem flugfreyja hjá Icelandair.

Ljósmyndarinn Sigurjón Arnarson, betur þekktur sem Sissi, var á svæðinu og tók þessar frábæru myndir sem fylgja fréttinni. Þar má sjá þegar Hildur var krýnd Miss Universe Iceland og margt margt fleira.

Aðsent/Miss Universe Iceland - Sissi





Fleiri fréttir

Sjá meira


×