Bíó og sjónvarp

Lék óafvitandi með þýskum stórstjörnum

Stefán Þór Hjartarson skrifar
Arnar Dan stendur í ströngu þessa dagana, í Borgarleikhúsinu, Reykjavík Chips og heima fyrir en hann eignaðist nýlega son. Fréttablaðið/eyþór
Arnar Dan stendur í ströngu þessa dagana, í Borgarleikhúsinu, Reykjavík Chips og heima fyrir en hann eignaðist nýlega son. Fréttablaðið/eyþór
Þetta var náttúrulega stórfurðulegt, en maður lendir í ýmsum giggunum þegar maður er leikari. Þarna er ég að leika ungan strák sem er fyrir eldri konur, ég hitti píu á djamminu og fer með henni heim en hún sér eftir því og hendir mér út. Hún leikur á móti mér á þýsku en ég tala ensku. Síðan er þetta allt döbbað úti,“ segir Arnar Dan Kristjánsson leikari en hann lék síðasta sumar í kvikmyndinni Island Krimi – Der Tote vom Westfjord, eða Íslensk sakamál – Dauði á Vestfjörðum eins og það útleggst á ástkæra ylhýra, sem verður sýnd á RIFF-hátíðinni í lok mánaðar.

Bak við þessa mynd er þýski leikstjórinn Till Endemann og í aðalhlutverki er Franka Potente, sem fer með hlutverk glæpasagnahöfundarins Sólveigar Karlsdóttur, en sögusvið myndarinnar er á Vestfjörðum.

Þarna er svo einvalalið íslenskra leikara – Jóhann Jóhannsson, Elma Lísa Gunnarsdóttir, Erlingur Gíslason, Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Jóhannes Haukur Jóhannesson, Helgi Björnsson og Gunnar Hansson.

„Þessi mynd var tekin upp síðasta sumar þegar ég var í algjöru stressi við að stofna Reykjavík Chips samhliða því að vera að leika í þessari mynd. Það var einhver geðveikasti tími sem ég hef átt á ævinni – en ég er mjög spenntur að sjá afraksturinn og ánægður með að myndin sé sýnd á RIFF.

Það sem ég gerði mér engan veginn grein fyrir þegar ég tók þátt í þessari mynd var að þetta fólk er algjörar stjörnur í Þýskalandi, ég hef aldrei séð neitt af þessum leikkonum og leikurum en þau eru alveg „huge“ þarna úti. Aðalleikkonan Franka Potente, en við náðum ágætlega saman þarna, er til að mynda algjör stjarna þarna úti. Hún var til dæmis að deita Elijah Woods. Þannig að bláeygði íslenski strákurinn sem er að stofna frönskubúð er bara að leika í risa þýskri mynd,“ segir Arnar um þessa merkilegu reynslu.

Arnar Dan er einn af mönnunum bak við veitingastaðinn Reykjavík Chips en þegar blaðamaður náði á hann var hann einmitt í óðaönn að hlaupa í skarðið í frönskunum vegna veikinda meðal starfsfólks.

En Arnar er með fleiri bolta á lofti því hann leikur í Mamma Mia í Borgarleikhúsinu sem hefur verið sýnd þar í að verða fáránlega langan tíma, þetta eru orðnar einhverjar 90 sýningar, við gífurlegar vinsældir og síðan stofnaði hann nýverið annað fyrirtæki ef svo má segja en Arnar eignaðist son á dögunum og á því ansi langa daga um þessar mundir.

Island Krimi – Der Tote vom Westfjord verður sýnd á kvikmyndahátíðinni RIFF sem hefst 29. september.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×