Lífið

Bjó til frumlegasta orðið á skraflmótinu

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Katrínu Fjólu finnst stundum gaman að vera fín.
Katrínu Fjólu finnst stundum gaman að vera fín. Vísir/Vilhelm
Hin átta ára Katrín Fjóla Alexíusdóttir vakti athygli fyrir góða frammistöðu á skraflmóti á Ísafirði nýlega. Hún átti bæði hæsta bingóið fyrir orðið rokinni og frumlegasta orðið, sniðlas, sem er greinilega þátíðarmynd af sögninni að sniðlesa. Hún kveðst þó ekki vera vön að spila skrafl.

Þetta var í fyrsta skipti sem ég spilaði. Ég var með mömmu sem kenndi mér skrafl. Það var samt ég sem bjó til orðin.

Heldurðu að þú fáir ekki skrafl í jólagjöf, fyrst þú varst svona dugleg? Nei, ég þarf þess ekki því ég fékk það í verðlaun á mótinu. Það geta fjórir verið í því.

Lestu mikið? Já. Mér finnst gaman að lesa bækur.

Hvað finnst þér skemmtilegast í skólanum? Þegar það eru lestrarpróf.

En hvað gerir þú helst eftir skólann? Þá leik ég mér við systur mínar, Elísabetu, sem er eins árs og Auði sem er þriggja ára. Svo leik ég mér með dótið mitt.



Áttu mikið dót? Já, uppáhaldsdótið mitt er Lego Friends.



Þar sem vetrarfrí var í skólanum á Ísafirði brá Katrín Fjóla sér suður í heimsókn til ömmu sinnar og nöfnu í Mosfellsbæ. Þær bralla ýmislegt saman, brunuðu meðal annars í Smáralindina og kíktu í búðir. Þar týndist Katrín Fjóla um stund en fannst inni í mátunarklefa.

Keyptuð þið amma eitthvað í Smáralindinni? Já, við keyptum svolítið af fötum.



Finnst þér gaman að vera fín? Stundum.

Katrín segir snjóinn hafa verið kominn á Ísafirði. Hún hlakkar að sjálfsögðu til jólanna og vonar að eitthvað skemmtilegt leynist í jólapökkunum undir trénu þegar þar að kemur.

 

Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 26. nóvember 2016.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×