Þess vegna er ég klökk Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 9. desember 2016 11:15 "Við vorum miklir prakkarar báðar og lifandi stúlkur,“ segir Margrét um þær Berglindi. Vísir/GVA
Nú fer ég að skæla og verð að setjast niður með kerti,“ segir Margrét Pálmadóttir söngstjóri þegar hún er beðin að minnast æskuvinkonu sinnar Berglindar Bjarnadóttur í orðum. Margrét er meðal þeirra sem standa að ókeypis minningatónleikum um Berglindi í hádeginu á morgun í Hafnarfjarðarkirkju, þar sem kórarnir hennar, Vox feminae og Árórur, koma fram ásamt Kór Öldutúnsskóla undir stjórn Brynhildar Auðbjargardóttur, Hönnu Björk Guðjónsdóttur söngkonu og Arnhildi Valgarðsdóttur píanó- og organleikara. Tilefnið er að þrjátíu ár eru frá því Berglind lést, aðeins 29 ára að aldri af völdum illvígs krabbameins. Hún var búin að heilla þjóðina með söng sínum, til dæmis í tríóinu Lítið eitt. Það var einmitt í kór Öldutúnsskóla sem þær kynntust Margrét og Berglind þegar þær voru átta og níu ára gamlar og smullu saman sem vinkonur og söngsystur. „Það skapast sérstök vinátta í kór og raddir okkar Berglindar hljómuðu strax saman, svo það var sterkur strengur á milli okkar,“ segir Margrét. „Við fengum líka einstakt uppeldi hjá Agli Friðleifssyni kórstjóra og lentum fljótlega í ævintýrum. Alls held ég að við höfum farið í átta söngferðir til útlanda saman með ýmsum kórum, fyrst með kór Öldutúnsskóla þegar við vorum ellefu ára. Við fórum báðar að læra söng hjá Elísabetu Erlingsdóttur, 13 og 14 ára, því Egill notaði okkur fyrir sólóista, vorum samferða í strætó í Tónlistarskóla Kópavogs. Þar man ég eftir okkur að leita að kexi á kennarastofunni því okkur þótti báðum svo gott að borða! Síðar sungum við í Kirkjukór Hafnarfjarðarkirkju, Pólýfónkórnum og Þjóðleikhúskórnum. Sungum í 56 sýningum af Carmen eftir Bizet, meðal annars þegar við vorum í stúdentsprófum. Á milli frönsku- og þýskuprófs var upplestrarvika og þá skruppum við saman til Vínarborgar með Framsóknarflokknum og fórum í óperuna og á alls konar tónleika. Þá varð ég ástfangin af Vínarborg en Berglind fór í framhaldsnám til Stokkhólms svo leiðir skildi og við héldum sambandinu gegnum bréfaskriftir, ég á nokkur falleg kort og bréf frá henni.“ Margrét segir ókeypis inn á tónleikana í hádeginu í dag. „Við minnum bara á Krabbameinsfélagið,“ segir hún. „Þetta eru minningartónleikar með stórri þökk og fögrum æskuminningum. Þess vegna er ég klökk.“ Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 9. desember 2016.
Lífið Menning Mest lesið Steldu stílnum af konunum í forsetaframboði Tíska og hönnun Krakkatían: Frambjóðendur, rapparar og ofurhetjur Lífið Af vængjum fram: „Ég ætla ekkert að fara að gráta hérna“ Lífið Ásdís Rán býður forsetaefnum á rauða dregilinn Lífið Fréttatía vikunnar: Forsetakosningar, sjóslys og mýflugnafaraldur Lífið „Blessunarlega ekkert stoppaður af foreldrum mínum“ Tíska og hönnun Heitustu trendin fyrir sumarið 2024 Lífið Forseti Hæstaréttar og Kristján Loftsson í gámapartýi Lífið Hafa ekki sést saman í sjö vikur Lífið „Fengum ekki sjokk, en við fengum sjokk að hann væri með hjartagalla“ Lífið Fleiri fréttir „Leikmyndin er auðvitað algjört rusl“ Gríman 2024: Saknaðarilmur hlaut flestar tilnefningar Barbara Hannigan stjórnar Sinfóníuhljómsveitinni Bergur Þór nýr leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar Nóbelsverðlaunahafinn Alice Munro er látin Fjögurra ára rússíbanareið að baki Vilja vekja áhuga ungu kynslóðarinnar á töfrum klassískrar tónlistar Hildur, Rán og Ásta fá Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar Bein útsending: Setning Barnamenningarhátíðar Besti vinur úlfanna hlakkar til að tengjast áhorfendum í Hörpu Nýr safnstjóri Listasafnsins á Akureyri Þau eru tilnefnd til Maístjörnunnar Eigandinn heltekinn af skrímslaverkunum hans Sindra Kveður Tjarnarbíó: „Of lítið og of seint“ Þessi voru tilnefnd til barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs Vatnið alltaf heillað þrátt fyrir mikla hræðslu Stórglæsilegar stjörnur á Eddunni Á ferð með mömmu hlaut níu Eddur Ætlar aldrei að setjast í helgan stein Sjá meira