Innlent

Borgum yfir meðal­tali með hverjum nema en árangur undir meðal­tali

Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar
Ísland borgar yfir meðaltali með hverju grunnskólabarni.
Ísland borgar yfir meðaltali með hverju grunnskólabarni. MYND/Sigurjón

Árangur íslenskra nemenda hefur aldrei verið lakari í náttúrufræði, stærðfræði og lestri samkvæmt niðurstöðum PISA könnunarinnar og er langt undir OECD meðaltali.

Kennarasambandið sendi frá sér yfirlýsingu eftir að niðurstöðurnar voru kynntar í gær þar sem segir að menntakerfið á Íslandi hafi liðið fyrir langvarandi sparnaðarstefnu. En spurningin er hvort fjárskortur sé rót vandans.

Samkvæmt nýjustu rannsókn OECD á hve mikið lönd borga með hverjum grunnskólanema, er Ísland í níunda sæti og yfir OECD meðaltali. Þarna er Ísland á svipuðum slóðum og Svíþjóð, Bretland, Austurríki og Bandaríkin en Ísland er þó talsvert lægra á lista en þessi lönd þegar kemur að árangri í Pisa-könnuninni eða í 39. sæti. 

Jóhanna segir að bæta þurfi fjármagni í háskóla- og símenntun kennara.mynd/kristinn yngvarsson

Jóhanna Einarsdóttir, forseti menntavísindasviðs HÍ, segir niðurstöður PISA benda til að skólakerfið sé í lægð og efnahagskreppan hafi líklega haft sitt að segja. Fjárframlög séu mögulega nægileg til grunnskóla en þau séu of lág til efri stiga menntakerfisins.

„Menntakerfið okkar hefur verið undirfjármagnað, til dæmis kennaramenntunin. Við erum að eyða miklu minna í menntun kennara nú en við höfum gert á undanförnum árum og það kemur niður á náminu. Við erum líka að eyða minna fé í símenntun kennara sem er gífurlega mikilvægur þáttur. Í okkar síbreytilega þjóðfélagi er það bara nauðsynlegt til að halda upp gæðaskólastarfi,” segir Jóhanna.

En talandi um kennaramenntun. Eru lakari nemendur á Íslandi, af því að það eru lakari kennarar hér?

„Nei, alls ekki. Það er stutt síðan fimm ára meistaranám kennara var tekið upp og við höfum útskrifað fáa kennara hingað til úr því námi. En þetta var mikið framfaraspor sem ég er viss um að muni skila sér í betra skólakerfi í framtíðinni,” svarar Jóhanna.


Tengdar fréttir

Niðurstaða PISA-könnunar ákveðinn áfellisdómur að mati ráðherra

Ný PISA-könnun er ákveðinn áfellisdómur yfir íslenska menntakerfinu. Þetta segir starfandi menntamálaráðherra. Íslensk börn hafa aldrei komið verr út úr könnuninni og eru langt undir meðaltali OECD-landanna í stærðfræði, náttúruvísindum og lestri.

PISA-könnun: Hrikalegar tölur og verra á landsbyggðinni

Íslendingar eru á niðurleið á öllum sviðum samkvæmt nýrri PISA-rannsókn. Kynjamunur er ekki marktækur nema hvað varðar lesskilning. Landsbyggðin stendur verr en höfuðborgarsvæðið á öllum sviðum.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×