Íslenski boltinn

Fjölnir fór illa með Íslandsmeistarana

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Ingimundur Níels skoraði fyrir Fjölni í kvöld.
Ingimundur Níels skoraði fyrir Fjölni í kvöld. vísir/eyþór
Fjölnir er sigurvegari Bose-mótsins í knattspyrnu í ár en þar með er fyrsta móti undirbúningatímabilsins í knattspyrnu lokið.

Fjölnir hafði öruggan sigur gegn FH í úrslitaleiknum í kvöld, 6-1. Bojan Stefán Ljubicic kom Fjölni yfir á fjórtándu mínútu en Atli Guðnason jafnaði metin fyrir Hafnfirðinga mínútu síðar.

Fjölnir tók þá öll völd í leiknum. Ægir Jarl Jónsson, Viðar Ari Jónsson, Þórir Guðjónsson, Ingimundur Níels Óskarsson og Ingibergur Kort Sigurðsson bættu við mörkum fyrir Grafarvogsliðið.

Fjölnismenn höfnuðu í fjórða sæti Pepsi-deildar karla í haust sem er besti árangur félagsins frá upphafi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×