Skoðun

Til forseta Íslands: Skilgreining á Íslendingum, Íslandi og þínu forsetahlutverki

Ole Anton Bieltvedt skrifar
Ágæti Guðni.

Ég fluttist hingað heim, eftir 27 ára dvöl erlendis, sl. haust. Ég hef því verið að skoða og setja mig inn í mál hér síðustu 3-4 mánuði, en á sama tíma hefur þú verið að byggja upp þinn forsetastíl, sem mér líkar afar vel.

Ég segi ekki, að máltækið „Glöggt er gests augað“ eigi við um mig, en ég sé ýmislegt, alla vega til að byrja með – sem aðkomumaður – öðruvísi en heimamenn.

Á sama hátt og margt kemur mér hér jákvætt og vel fyrir sjónir, er sumt, sem mér finnst miður fara. Ég á hér einkum við viðhorf þjóðfélagsins til dýra, lífríkisins í kringum okkur og náttúrunnar.

Í nýliðnum kosningum talaði enginn stjórnmálaflokkur fyrir þessum málefnum í mín eyru. Ekki einu sinni Vinstri grænir. Fyrir hvað skyldi „grænir“ standa í þeirra flokksheiti?

Nú er það svo að menn eru bara lítill hluti af lífverum jarðar, lítill hluti af sköpunarverkinu. Margir virðast samt vera þeirrar skoðunar, að lífið á jörðunni snúist bara um mannfólkið; öll dýr, allar aðrar lífverur, náttúran og sköpunarverkið í heild sinni skipti hér litlu máli. Augljóst er auðvitað, að án heildarsköpunarverksins væri mannfólkið ekki til.

Kristindómurinn, með sínum annmörkum, ber að nokkru leyti ábyrgð á þessari dýrkun mannsins. Kristindómurinn nær bara til mannfólksins, aðrar lífverur eru ekki teknar inn í myndina. Það er mikil fátækt í því. Í þessu er búddismi miklu fullkomnari og ríkari trúarbrögð. Hann nær til alls lífs á jörðu og setur það í rétt samhengi.

Í nýársávarpi þínu, sem mér fannst með ágætum, saknaði ég þó þess að þú nefndir dýrin, lífríkið og náttúru Íslands. Þegar þú sagðir „Forseti Íslands á að vera fulltrúi og málsvari allra Íslendinga, allra sem búa á þessu landi“, hefði ég kosið að heyra þig skírskota til hins íslenzka lífríkis í heild sinni svo og til hinnar íslenzku náttúru líka. Væru Íslendingar eitthvað, væri Ísland eitthvað án þessa!?

Þú ert nýr og ferskur í þínu háa starfi, og það leynir sér ekki, að þú vilt vel og munt gera vel. Ég bið þig í allri vinsemd að hugleiða, hvort að það væri ekki við hæfi, að forseti Íslands beitti sér fyrir öryggi, lífskjörum og velferð allra lífvera og alls, sem lifir og hrærist, í þessu landi við þetta land og yfir þessu landi.

Þú talar réttilega um, að það þurfi að hlúa að sjúkum, fötluðum og öðrum, sem eiga undir högg að sækja í lífinu. En hverjir eru mest umkomulausir og mestu smælingjarnir, sem enga hönd geta borið fyrir höfuð sér, en eru samt í grundvallaratriðum mörg hver sköpuð eins og við, hafa vitund eins og við og skynja og finna til eins og við, þó að líkamsformið sé annað?

Ég bið þig að verða forseti og málsvari þessara smælingja líka!

Guð blessi forseta Íslands, Íslendinga og allt lífríki Íslands!

Með vinsemd og virðingu.

 

Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu.




Skoðun

Sjá meira


×