Lífið

Bein útsending: Verzló og Flensborg takast á í úrslitum Morfís

Tinni Sveinsson skrifar
Bára Lind Þórarinsdóttir, ræðumaður Íslands árið 2016, í pontu í úrslitum Morfís árið 2015.
Bára Lind Þórarinsdóttir, ræðumaður Íslands árið 2016, í pontu í úrslitum Morfís árið 2015. Jóhann Hinrik Jónsson
Úrslit MORFÍS, eða Mælsku- og rökræðukeppni framhaldsskóla á Íslandi, fara fram í Háskólabíói klukkan 20 í kvöld. 

Úrslitaviðureignin er á milli Flensborgarskólans í Hafnarfirði og Verzlunarskóla Íslands. Umræðuefnið er „ESB er að bregðast hlutverki sínu“. Verzló mælir með en Flensborg á móti.

Kynnir og fundarstjóri er grínistinn og athafnakonan Steiney Skúladóttir. Keppnin verður í beinni útsendingu á Facebook-síðu Morfís sem hægt er að horfa á hér fyrir neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×