Innlent

Kennarar á Akranesi eru óánægðastir

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Stjórnendavandi er sagður í Fjölbrautaskólanum.
Stjórnendavandi er sagður í Fjölbrautaskólanum. vísir/gva
„Það er eðlilegast að draga þá ályktun að starfsánægja sé mjög tengd stjórnunarháttum. Þessar stofnanir eru með misflinka stjórnendur,“ segir Guðríður Arnardóttir, formaður Félags framhaldsskólakennara, um niðurstöður könnunar SFR á Stofnun ársins. Guðríður segir að aðbúnaður fólks skipti líka miklu máli.

Út úr niðurstöðunum má lesa mjög mikinn mun á ánægju starfsmanna framhaldsskólanna. Fjölbrautaskóli Vesturlands á Akranesi stendur verst allra framhaldsskólanna, en Menntaskólinn á Tröllaskaga kemur best út. Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum kemur næstbest út en Menntaskólinn í Kópavogi kemur næstverst út.

Guðríður Arnardóttir
„Ef þú býrð við sanngirni og þér finnst borin virðing fyrir því sem þú segir að þá ertu ánægðari í starfi, en ef þú upplifir að þú hafir ekkert að segja og hafir engin áhrif,“ segir Guðríður. Hún segir niðurstöðuna í könnuninni í takti við það sem stéttarfélagið hafi upplifað.

Athygli vekur að Fjölbrautaskólinn í Ármúla kemur allra skóla á höfuðborgarsvæðinu best út úr könnuninni. Viðræður standa nú yfir milli ríkisins og Tækniskólans um að Ármúlaskóli verði sameinaður Tækniskólanum.

Félag framhaldsskólakennara hóf í vetur könnun á viðhorfi félagsmanna til stjórnunarhátta og fagmennsku skólameistara. Könnunin var stöðvuð að kröfu stjórnar Skólameistarafélagsins. Samkvæmt upplýsingum frá Félagi framhaldsskólakennara verður hafist handa við könnunina á ný á næstu dögum. „Var sest yfir framkvæmd og uppbyggingu könnunarinnar og spurningar snyrtar til, opnum spurningum er sleppt alveg og könnunin stytt verulega en markmiðið er það sama: að skoða hvað brennur á okkar félagsmönnum varðandi stjórnun í framhaldsskólunum og finna besta skólameistarann,“ segir í tölvupóstinum.

Tilgangur með vali á stofnun og fyrirtæki ársins er að taka eftir og verðlauna vinnustaði sem ná framúrskarandi árangri við stjórnun mannauðs. Þá er tilgangurinn einnig að veita stjórnendum tæki til að vinna að umbótum í stjórnun og starfsumhverfi.

Fréttablaðið óskaði eftir viðbrögðum frá Ágústu Elínu Ingþórsdóttur, skólameistara Fjölbrautaskóla Vesturlands, við könnuninni en hún svaraði ekki skilaboðum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×