Innlent

Sjómenn uggandi vegna verðfalls

Kristinn Ingi Jónsson skrifar
Gengisstyrking krónunnar skýrir ekki verðfallið á fiskmörkuðum að öllu leyti. Verðið hefur lækkað um meira en 50 prósent milli ára.
Gengisstyrking krónunnar skýrir ekki verðfallið á fiskmörkuðum að öllu leyti. Verðið hefur lækkað um meira en 50 prósent milli ára. vísir/stefán
Örn Pálsson, framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda, segir að þær verðlækkanir sem hafa orðið á fiskmörkuðum í sumar valdi sjómönnum miklum áhyggjum. Verði þær viðvarandi gætu þær reynst þjóðarbúinu afar dýrkeyptar. Engin einhlít skýring hefur fundist á lækkununum.

„Ef þorskverðið heldur áfram að lækka svona gríðarlega, þá munu áhrifin á þjóðarbúið koma fljótt í ljós þar sem þorskur er um 45 prósent af öllu aflaverðmæti. Þannig munu laun allra sjómanna lækka sem leiðir til minnkandi tekna sveitarfélaga í formi útsvars og annarra gjalda. Þannig að lækkunin smitar út frá sér. Það er engin spurning um það. Og ef hún verður viðvarandi, sem ég vona auðvitað ekki, þá er alvarleikinn mikill,“ segir hann í samtali við blaðið.

Dæmi eru um að verð á óslægðum þorski hafi lækkað um 52 prósent á milli ára. Meðalverð á fiskmörkuðum í lok júnímánaðar var 157 krónur á kíló en kílóverðið var 327 krónur á sama tíma í fyrra.

Örn segir að mikil gengisstyrking krónunnar skýri þessa lækkun að einhverju leyti, en þó ekki að öllu. Einnig hafi kostnaður við vinnslu hækkað og þá hafi stóru sjávarútvegsfyrirtækin ekki keypt eins mikið af fiski í sumar og síðustu sumur. Kaupendahópurinn sé því annar en áður. Það geti skýrt lækkunina að hluta.

Lækkanirnar hafa, að sögn Arnar, dregið úr áhuga sjómanna og jafnframt leitt til þess að mun færri stunda strandveiðar í ár en í fyrra. „En sumir vilja blása á móti og ég veit til dæmis um strandveiðimenn sem hafa verið að hugleiða það að kanna útflutning á fiski í gámum til þess að selja á erlenda markaði,“ nefnir hann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×