Íslenski boltinn

Leik ÍBV og Vals frestað

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Valur og ÍBV munu ekki eigast við í dag eins og gert hafði verið ráð fyrir.
Valur og ÍBV munu ekki eigast við í dag eins og gert hafði verið ráð fyrir. vísir/stefán
Leik ÍBV og Vals í Pepsi deild karla sem átti að fara fram í dag hefur verið frestað.

Ákvörðun var tekin um að fresta leiknum vegna veðurs, en leikurinn átti að vera sá fyrsti í 17. umferð Pepsi deildarinnar.

Leikurinn hefur verið færður til morguns, en nýr leiktími er klukkan 14:00 sunnudaginn 27. ágúst. 





Markvörður kvennaliðs ÍBV, Adelaide Gay, birti myndband á Twitter af æfingu kvennaliðsins í morgun þar sem meðal annars má sjá annað mark Hásteinsvallar fjúka til í vindinum.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×