Erlent

Gefa grænt ljós á gámabyggðir í Kaupmannahöfn

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Svona líta gámaíbúðir CPH Villlage út.
Svona líta gámaíbúðir CPH Villlage út. Mynd/CPH Village
Borgarstjóri tækni- og umhverfismála í Kaupmannahöfn hefur gefið grænt ljós á að reistar verði gámabyggðir svo leysa megi húsnæðisvanda stúdenta og ungs fólks í borginni.

Það skilyrði er sett að gámabyggðirnar verði tímabundnar og reistar á svæði þar sem engar áætlanir eru uppi um að þróa frekari byggð. Þá er einnig sett skilyrði fyrir því að hægt verði að flytja gámana á brott þegar landsvæðið sem nýtt verður undir þá verður skipulagt undir byggð.

„Fyrstu umsókninni hefur verið skilað inn. Ef allt er eins og það á að vera munum við samþykkja hana og þá verður hægt að byggja. Þetta mun taka þrjár til fjórar vikur ef umsóknin uppfyllir öll skilyrði,“ segir Morten Kabell, borgarstjóri umhverfis- og tæknimála í samtali við Politiken.

Grænu svæðin tákna þau svæði þar sem reiknað er með að heimilt verði að reisa gámabyggðir.

Vill reisa tvö þúsund íbúðir fyrir 2020

Kallað hefur verið eftir því að Kabell gefi grænt ljós á slíkar framkvæmdir en ný skipulagslög heimila að reistar séu tímabundin íbúðarhúsnæði á svæðum þar sem ekki er fyrirhugað að þróa byggð.

Frederick Noltenius Busk, stofnandi CPH Village, er einn þeirra sem hyggst reisa gámaíbúðir á þeim svæðum sem það er heimilt. Hann segist geta byggt tvö þúsund slíkar íbúðir fyrir árslok 2020.

Horft er hýru auga til Refshale-eyju þar sem áður var mikið iðnaðarsvæði. Er reiknað með að 15-20 íbúar geti flutt inn fyrir 1. nóvember og snemma á næsta ári verði allt að 175 gámaíbúðir komnar í notkun.

Busk reiknar með að hámarksleiga verði um fjögur þúsund danskar krónur á mánuði, um 70 þúsund íslenskrar krónur. Eldhús verður í hverri íbúð en baðherbergi verður deilt með nágrönnunum. 

Húsnæðisvandi ungra stúdenta í Kaupmannahöfn er töluverður. Talið er að leigan á opnum leigumarkaði þar hafi hækkað um 51 prósent á árunum 2010 til 2016. Er vonast til þess að gámabyggðirnar geti slegið á þann vanda.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×