Lífið

Snapparar: Binni lætur allt flakka á Snapchat

Brynjólfur Löve er einn af þeim stærstu á Snapchat.
Brynjólfur Löve er einn af þeim stærstu á Snapchat.
Brynjólfur Löve Mogensen atvinnusnappari og brettagaur (binnilove á Snapchat) og Erna Kristín Stefánsdóttir guðfræðinemi (ernuland á Snapchat) eru viðmælendur kvöldsins í þættinum Snapparar.

Hér fylgir brot úr þætti kvöldsins, sem sýnir hvernig snapparar hætta sér stundum út á gráa svæðið.

Þriðji þáttur Snappara er á dagskrá Stöðvar 2 í kvöld kl. 20. Þar kynnumst við tveimur gerólíkum snöppurum, brimbrettagaurnum Binna Löve sem hikar ekki við að koma nakinn fram og guðfræðinemanum Ernu Kristínu.

Umsjón þáttanna er í höndum Lóu Pind Aldísardóttur, upptökustjórn og klippingu annaðist Lúðvík Páll Lúðvíksson.


Tengdar fréttir

„Fólk komið með ógeð á auglýsingum á Snapchat“

"Fólk er komið með svolítið ógeð á þessum eilífu auglýsingum,” segir Manúela Ósk Harðardóttir, ein vinsælasta snappstjarna landsins um auglýsingar á Snapchat. Á síðustu tveimur árum hefur þeim fjölgað hratt sem auglýsa vörur og þjónustu á Snapchat.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×