Fótbolti

Eiður Smári: Þegar við komum heim frá Frakklandi var næstum því eins og við hefðum unnið EM

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Eiður Smári Guðjohnsen á EM 2016.
Eiður Smári Guðjohnsen á EM 2016. Vísir/Getty
Eiður Smári Guðjohnsen er kominn til Indónesíu frá Kína og hann hélt í dag blaðamannafund á vegum Knattspyrnsambands Indónesíu í tilefni af tveimur vináttulandsleikjum Íslands og Indónesíu.

Indónesíska knattspyrnusambandið bauð Eiði Smára til landsins í tilefni af leikjunum en hann er líklega þekktasti fótboltamaður Íslands frá upphafi enda varð hann á sínum tíma enskur meistari með Chelsea og vann þrefalt með Barcelona.

Eiður Smári var spurður út í ýmislegt á blaðamannfundinum en að sjálfsögðu mest út í íslenska landsliðið og frábæran árangur þess á síðustu árum. Eiður Smári var með liðinu þegar liðið komst í átta liða úrslitin á EM 2016 en fylgdist með úr fjarlægð þegar liðið tryggði sér þátttökurétt á HM í fyrsta sinn.



Hér fyrir neðan má sjá tengil á blaðamannafund Eiðs Smára Guðjohnsen í dag.



Vísir/Getty
Eiður Smári var meðal annars spurður út í möguleika Íslands á HM í Rússlands næsta sumar:

„Þetta snýst svolítið um hvaða möguleika við erum að tala því við þurfum að horfa raunhæft á stöðuna. Það eru ekki miklar líkur á því að við verðum heimsmeistarar en ég vil svara þessari spurningu á sama hátt og ég gerði þegar við fórum á EM,“ sagði Eiður Smári.

„Okkar markmið á að vera það að þegar leikmennirnir koma heim þá á þeim að líða eins og þeir hafi gefið allt sitt í þetta, skilið allt eftir á vellinum. Þeirra markmið er að geta gengið af velli eftir síðasta flautið með höfuðið hátt. Það gerðum við á Evrópumeistaramótinu í Frakklandi,“ sagði Eiður Smári.

Vísir/AFP
„Þegar við komum heim til Íslands eftir EM í Fraklandi þá var næstum því eins og við hefðum unnið mótið. Við gáfum fólkinu okkar svo mikla gleði ekki bara þeim sem komu til Frakklands heldur einnig fólkinu heima,“ sagði Eiður Smári.

„Okkur finnst við hafa gefið heiminum mjög jákvæða mynd af Íslandi og það ætti líka að vera markmiðið okkar núna,“ sagði Eiður Smári.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×