Viðskipti innlent

Öflug kona í karlaheimi

Sigríður Inga Sigurðardóttir skrifar
Erna segir mikinn heiður að fá viðurkenningu FKA, bæði fyrir sig og teymið sem hún vinnur með.
Erna segir mikinn heiður að fá viðurkenningu FKA, bæði fyrir sig og teymið sem hún vinnur með. MYND/ANTON BRINK
Erna Gísladóttir er forstjóri BL, stjórnarformaður Sjóvár og situr í stjórn Haga. Hún hlýtur ein þriggja kvenna viðurkenningu Félags kvenna í atvinnulífinu í ár. Erna er að mati dómnefndar öflug kona og mikilvæg fyrirmynd í atvinnugeira þar sem karlar eru ráðandi.

Erna var ung að aldri þegar hún hóf störf hjá fjölskyldufyrirtækinu Bifreiðum og landbúnaðarvélum og vann sig upp í stól forstjóra. Hún lét af störfum þegar fyrirtækið var selt árið 2007. Fjórum árum seinna keyptu Erna og Jón Þór Gunnarsson, eiginmaður hennar, fyrirtækið aftur og um leið bílaumboðið Ingvar Helgason. Félögin voru sameinuð í eitt undir heitinu BL þar sem Erna er við stjórnvölinn.

Rökstuðningur FKA fyrir því að veita Ernu viðurkenningu í ár er m.a. sá að hún sé öflug kona í karlaheimi og mikilvæg fyrirmynd sem kona í atvinnugeira sem sé allt of karllægur.

„Það er mikill heiður að fá þessa viðurkenningu, bæði fyrir mig og teymið sem ég vinn með. Um er að ræða hóp af frábæru fólki sem ég hef lengi unnið með,“ segir Erna.

Hún hefur í mörg horn að líta í störfum sínum fyrir BL, Sjóvá og Haga, enda um að ræða stór fyrirtæki þar sem oft þarf að taka erfiðar ákvarðanir. „Það er nóg að gera hjá mér en gott skipulag og gott samstarfsfólk hjálpar til svo að allt gangi upp.“

Íslenskar konur sækja á

Erna segist ekki beinlínis líta á sjálfa sig sem fyrirmynd annarra kvenna heldur vinna einfaldlega sína vinnu frá degi til dags. En hvað finnst henni félag á borð við FKA hafa að segja fyrir aðrar konur?

„Mér finnst það skipta miklu máli. Það er auðvitað mikilvægt að konur sjái aðrar konur í svona störfum og geti litið upp til þeirra, ekki síst ungar konur. Íslenskar konur klifra vissulega upp framastigann og mörgum finnst það ganga heldur hægt en það gengur þó hratt miðað við mörg önnur lönd. Við gleymum stundum hvað íslenskum konum gengur vel sé horft til annarra landa,“ segir Erna.



Ritari eða forstjóri?

Á starfsferlinum hefur Erna oft fundið fyrir því að fólki finnist skrýtið að kona sé forstjóri bílaumboðs. „Fáar konur hafa verið í áhrifastöðum innan bílageirans en þeim fer þó fjölgandi, sérstaklega erlendis. Í gegnum tíðina hef ég oft mætt á fundi þar sem fólk heldur að ég sé ritari en ekki forstjóri en um leið og ég hef sýnt fram á að ég veit um hvað ég er að tala hefur það ekki verið neitt vandamál,“ greinir hún frá.

Hvað BL varðar segir Erna að reksturinn gangi mjög vel þessa mánuðina, enda endurspegli bílasala oft væntingar fólks til framtíðarinnar. Þegar Erna er spurð hvort margt hafi breyst innan bílageirans frá því hún tók sín fyrstu skref í þeim heimi segir hún að svo sé.

„Öryggismálin hafa tekið miklum framförum á stuttum tíma. Ég man þá tíð þegar hvorki tölvukubbar né loftpúðar voru til, sem í dag er staðalbúnaður í öllum nýjum bílum. Rafmagnið kemur hratt inn og hefur breytt heilmiklu og ég held það verði enn meiri breytingar á bílum á næstu árum. Von er á hálfsjálfkeyrandi bílum innan skamms og það er ekki langt í að bílar verði sjálfkeyrandi og tali hver við annan,“ segir Erna.

Innt eftir því hvort hún hafi tíma fyrir áhugamál kemur í ljós að Ernu finnst gaman að ferðast um heiminn. „Ég gef mér tíma til að spila golf á sumrin og reyni að fara í laxveiði á hverju ári. Ég hef líka gaman af fótbolta og fór á EM í hittifyrra og ætla á HM í Rússlandi í sumar,“ segir Erna að lokum.

 

Sjá nánar í sérblaðinu Konur í atvinnulífinu


Tengdar fréttir

Erna Gísladóttir hlaut FKA viðurkenninguna 2018

Félag kvenna í atvinnulífinu, FKA, heiðraði í dag Ernu Gísladóttur, Hildi Petersen og Söndru Mjöll Jónsdóttur Buch fyrir eftirtektarverð störf þeirra í atvinnulífinu á árlegri hátíð sinni, sem haldin var í Gamla bíói.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×