Innlent

Deila um nýja sundlaug í Ísafjarðarbæ

Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar
Deilt er um íþróttaaðstöðu og nýja sundlaug í Ísafjarðarbæ fyrir sveitarstjórnarkosningarnar. Minnihlutinn gagnrýnir tug milljóna króna hönnunarsamkeppni sem muni að öllum líkindum ekki nýtast. Meirihlutinn vill leggja ákvörðunina undir íbúana.

Fyrir utan hagsmunagæslu Ísafjarðarbæjar þegar kemur að laxeldi, raforku og samgöngum þá má segja að heitasta málið fyrir sveitastjórnarkosningarnar sé sundlaugin. Ísfirðingar vilja stærri sundlaug, deilt er um hvort byggja eigi við gömlu sundlaugina hér í hjarta miðbæjarins eða byggja nýja sundlaug hér á Torfnesi þar sem öll önnu íþróttaaðstaða er.

Daníel Jakobsson.Vísir/Egill
Oddviti Sjálfstæðismanna gagnrýnir almennt framkvæmdaleysi meirihlutans síðustu fjögur ár þrátt fyrir auknar tekjur. Plön hafi legið fyrir að byggja upp íþróttahús og sundlaug á nýju svæði. 

„Núverandi meirihluti ákvað að fara í 20-30 milljón króna könnun um hvernig væri hægt að endurbæta núverandi sundlaug. Það var aldrei vilji fyrir því verkefnim,“ segir Daníel Jakobsson, oddviti Sjálfstæðismanna í Ísafjarðarbæ.

Framsóknarmenn eru sammála.

„Ég held að menn séu komnir í ógöngur með þetta. Við viljum fara á Torfunes og skipuleggja svæðið þar heildstætt,“ segir Marzellíus Sveinbjörnsson, oddviti Framsóknarflokksins í Ísafjarðarbæ.

25 milljónir fóru í hönnunarsamkeppni á gömlu lauginni og var sigurtillagan lögð fyrir íbúana.

Arna Lára Jónsdóttir.Vísir/Egill
„Hvað viljum við gera með þetta? Viljum við vinna með þessa gömlu laug eða bíða lengur og gera alvöru laug. Eða þriðja leiðin, gera samstarf við ágætu nágranna í Bolungarvík og byggja laug með þeim. Um þetta erum við að spyrja í skoðunarkönnun og við hljótum að taka mark á því sem íbúar segja,“ segir Arna Lára Jónsdóttir, oddviti Í-listans í Ísafjarðarbæ.

Arna Lára segir tekjur bæjarfélagsins vissulega hafa aukist og loks sé bæjarbúum að fjölga en margt varðandi grunnþjónustu hafi setið á hakanum síðasta áratuginn

„Af því eins og ég sagði áðan erum við með rosalega mörg stór verkefni framundan og við þurfum að forgangsraða fjármagni.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×