Erlent

Nýútgefin gögn varpa ljósi á mannskæðan YouTube-hrekk

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Perez og Ruiz í myndbandi sem saksóknarar birtu á dögunum. Í stiklunni sést parið undirbúa atriðið, sem lyktaði með andláti Ruiz.
Perez og Ruiz í myndbandi sem saksóknarar birtu á dögunum. Í stiklunni sést parið undirbúa atriðið, sem lyktaði með andláti Ruiz. Skjáskot/Youtube
Saksóknarar í Minnesota-ríki í Bandaríkjunum birtu á dögunum ný myndbönd, auk annarra gagna, í tengslum við mál Monulisu Perez og Pedro Ruiz. Perez skaut Ruiz til bana í myndbandi sem birt var á netinu en töluvert var fjallað um málið á sínum tíma.

Sjá einnig: Játar manndráp vegna YouTube-hrekks sem fór úr böndunum

Hin nýútgefnu myndbönd, auk afrits af samtali parsins rétt áður en Perez tók í gikkinn, varpa nýju ljósi á aðdraganda atviksins sem átti sér stað í júní í fyrra. Myndband af atvikinu sjálfu, og þar með síðustu andartökum í lífi Ruiz, var ekki gefið út þar eð saksóknarar töldu það ekki eiga erindi við almenning.

Í téðu afriti af samtali Ruiz og Perez lýsir hin síðarnefnda yfir mikilli tregðu til að framkvæma hrekkinn. „Ég get ekki gert þetta, elskan,“ segir hún. „Ég er svo hrædd,“ bætir hún við en á meðan beinir Ruiz til hennar tilmælum um hvar hún eigi að standa. „Elskan, ég ætla ekki að gera þetta. Ég get það ekki,“ segir Perez. 

Parið virðir fyrir sér byssuna sem að endingu var notuð til verksins.Skjáskot/Youtube
Þá birtu saksóknarar einnig nokkurs konar stiklu, sem parið hlóð inn á YouTube-reikning sinn til að auglýsa byssuhrekkinn, en í henni sjást þau við undirbúning. Í myndbandinu sýna þau auk þess byssuna sem nota átti við framkvæmdina auk þess sem Ruiz skýrir frá áætlunum sínum.

„Ef ég dey þá er ég svo gott sem tilbúinn til að fara til himnaríkis strax. Ef ég dey er ég tilbúinn fyrir Jesú. Hann mun líklega ekki taka á móti mér við hliðið vegna þess hversu heimskulegt þetta er, en ég er fullviss um að kærasta mín muni hæfa bókina en ekki mig.“

Afrit af yfirheyrslum lögreglu yfir Perez voru einnig gefin út en þar segir hún Ruiz hafa reynt að sannfæra hana um að framkvæma atriðið svo vikum skipti. Hún hafi ávallt þvertekið fyrir það en látið undan þrýstingnum rétt áður en þau réðust í verkið.

Perez var dæmd í sex mánaða fangelsi fyrir manndráp í mars síðastliðnum. Hún játaði á sínum að hafa skotið úr skammbyssu í bók sem kærasti hennar, hinn 22 ára gamli Pedro Ruiz III, hélt á í um þrjátíu sentímetra fjarlægð frá byssunni. Þriggja ára gamalt barn parsins og þrjátíu aðrir fylgdust með því þegar Perez hleypti af en atriðinu var streymt beint á netinu.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×